Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1683
1683
1683

Jón var sagður sænskra þý

Hljóðbrot0:00

Lag Dvel ég í draumalandi

JJón var sagður sænskra þýsætti lagi að flýjakomst svo heill á húfi frímeð handritin til Svía.Að Bláturn kauða' í komið varkennum þessu prangien Leon-ora Ulfeld þarí áratugi fangi.

Glúmur Gylfason · 1683

Heimildir og samhengi

Jón Eggertsson (~1643-1689) átti í margvíslegum deilum, kærði og sætti kærum, t.d. fyrir galdur á alþingi 1680. Safnaði handritum fyrir Svía og kom í þeirra hendur með því að senda annan í land með þau á Helsingjaeyri (1682).
Að lenti á 3ja ár í sama lúxusfangelsi, Bláturni, og Leonora Ulfeld, dóttir Kristjáns IV., er haldið stafa af því að þrír íslenskir sýslumenn, staddir í Kh. í erindum kaupsetningar, hafi borið honum illa söguna – en Jón hafði lengi staðið í illdeilum við valdamestu höfðingja Íslands. Íslenskar æviskrár telja upp 6 þeirra. (1684).
Jón var frá ~1664/65 kvæntur Sigríði Magnúsdóttur stórráðu frá Sjávarborg, sem greiddi sektir hans heima, en Svíar ytra enda hafði hann út héðan margt merkra bóka til ríkisbókasafns Svía sem brunnu ekki eins og sumt í Kh. 1728. Jón fékk sinnt ritstörfum í fangavistinni.
Fyrri maður Sigríðar, Benedikt Pálsson, dó 1664. Þau munu hafa slitið samvistum áður - sjá 1633.

Aldarfjórðungi fyrr voru Svíar farnir að kepa við Dani um íslensk handrit. Í stríðinu 1657 til 1660, sem færði Svíum ekki aðeins Skán, heldur rændu þeir miklu bókasafni Seefeldts, landsdómara í Ringsted. Þá hertóku Svíar í sama stríði Íslandsskip sem flutti íslenskan fátækling, Jón Rúgmann, til náms í Danmörk og hafði hann meðferðis bókakost nokkurn, þar á meðal fornaldarsögur með sænsku efni. Svía vantað sárlega kunnáttumenn í íslensku og varð hertakan Jóni Rúgmann til þeirrar gæfu sem lesa má um á neðanskráðri slóð: (Tilvísun: Óskar Halldórsson, Bókmenntir á lærdómsöld, bls. 76.)

AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)

Corfiz Ulfeld, maður fyrrnefndrar kóngsdóttur, Leonoru, var í hæstri stöðu við hirðina en gerðist landráðamaður þegar gekk Svíum á hönd og var m.a.s. þeirra maður í niðurlægjandi friðarsamningum sem Danir máttu þola er þeir misstu Skán ~1659. Hann náðist aldrei, en vönduð eftirlíking af honum var sundurlimuð og sett á hjól og steglu í Kh. 1663, en Leonora sat í Bláturni 1663-1685, þ.e., samtímis Jóni Eggertssyni. Sjá og 1670, 1682, 1633.

Úr Bláturni féll óvart orðabókarhöfundurinn, Guðmundur Andrésson (1615-1654), en lifði fallið af, bankaði upp á og baðst inngöngu og fékk – e.t.v. 1640.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Hann var dæmdur fyrir þá dirfsku að rita gegn Stóradómi,
en Ole Worm fékk hann lausan til fræðastarfa með sér 1649 eða 1650.

(Ísl. æviskrár; J. Espólín; Ævar Kvaran: Ísl. örlög, bls. 14; Óskar Halldórsson, Bókmenntir á lærdómsöld, bls. 73).

Myndir

Einnig frá árinu 1683

  • Fordæðu síðast fyrir brennt
← 1682Antiquiarius Regis réð1683 →Fordæðu síðast fyrir brennt