Antiquiarius Regis réð
Lag Veröld fláa sýnir sig - Bj.Þ. 874
Antiquiarius Regis réðRánardætrum trúaenginn hefur h'ann síðan séðsagður með þeim búa.
Heimildir og samhengi
Mælifellsannáll I, 557: ,,Það haust sigldi á Spákonufellshöfðaskipi með Sveini kaupmanni Hanssyni, er fyrr var öltappari á Hofsós,
Hannes Þorleifsson lögmanns Kortssonar, kongl. majestets sagnaritari... var mælt að eigi hefði mörg ár ríkara skip siglt af Íslandi.
Það skip týndist fyrir ofsaveðri, að menn héldu, með öllu saman, mönnum og góssi”.
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
Jón Eggertsson, Jónssonar riddara í Haga, Magnússonar prúða, (1670) hætti við að fara utan með skipinu þegar hann sá frænda sinn, embættismann kóngsins, enda var hann með íslensk handrit í farteskinu ætluð Svíum, en Hannes með slíkt hið sama til Danmerkur.
Athyglisvert að þarna er Íslendingur titlaður kaupmaður og sýnist vera fjáður skipseigandi. (1683).