Árið 1889

t.d.

4 vísur frá árinu 1889
  1. 1889Lag: Vertu hjá mér, Dísa

    Af klárum falla kempur

    og klerkar missa hempur
    er Bakkusi á hendur
    biskup segir stríð
    hans þegnar fá að fjúka
    og ferli sínum ljúka
    fyrr en skyldi aldurs vegna
    úti þeirra tíð.

    + kempan Jón Sigurðsson, alþm. frá Gautlöndum, f. 1828; féll ölvaður af hestbaki á Öxnadalsheiði, festist í ístaðinu og dróst með hestinum. Hann lést að Bakkaseli fáum dögum síðar – líklega úr lungnabólgu. Jón…

    Hlusta
    Jón Sigurðsson frá Gautlöndum, b. & alþm.Hallgrímur Sveinsson, biskup Ísl., alþm.+3
  2. 1889Lag: Kálfar tveir í kúamynd

    Ísfirðingar einna nyrst

    á Ísalandi híma
    úr vör þar ýttu virðar fyrst
    vélbáti og síma.

    Jón Þ. Þór, Saga Ísafjarðar III, 158: ,,Vorið 1889 flutti hann (Ásgeir G. Ásgeirsson, eigndi Ásgeirsverslunar eftir föður sinn) með sér til Ísafjarðar frá Kaupmannahöfn símtól og efni í símalínu, og lagði Guðmundur…

    Hlusta
    Árni Jónsson, verslunarstjóri Ísafirði+3
  3. 1889Lag: Vertu hjá mér, Dísa

    Nú Tjallinn fer að toga,

    trolla sund og voga
    til sín þorska roga
    og þeytir fyrir borð
    öðrum burtu bola,
    bara hirða kola,
    en landinn á þess kost að skipta á
    spíra fyrir sporð.

    Fyrst vart við breska togara búna seglum auk gufuvéla. Sáust þeir við suðausturströndina. Fjölgaði ört, drógu á grunnsævi og sóttust eftir kola og lúðu en hentu þorski sem var verðminni ytra. Togarar vargar í véum á…

    Hlusta
    ÞorskurSkarkoli+5
  4. 1889Lag: Allt fram streymir endalaust

    Loks hjá köllum kom til tals

    að klára Laugaveginn
    alla leið til Laugardals
    svo leppur fengist þveginn.

    1857 fauk hús sem staðið hafði við Þvottalaugarnar í Rvk. frá 1833. Thorvaldsensfélagið afhenti bænum nýtt hús 1889, sama ár og vagnfær vegur náði þangað. Áður máttu konur ganga vegleysu með þvottinn á bakinu.…

    Hlusta
    Þvottalaugarnar, Laugardal, Rvk.Þvottalaugarnar, Laugardal, Rvk.Laugavegur, Rvk.