Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1889
1889
1889

Nú Tjallinn fer að toga,

Hljóðbrot0:00

Lag Vertu hjá mér, Dísa

NNú Tjallinn fer að toga,trolla sund og vogatil sín þorska rogaog þeytir fyrir borðöðrum burtu bola,bara hirða kola,en landinn á þess kost að skipta áspíra fyrir sporð.

Glúmur Gylfason · 1889

Heimildir og samhengi

Fyrst vart við breska togara búna seglum auk gufuvéla. Sáust þeir við suðausturströndina. Fjölgaði ört, drógu á grunnsævi og sóttust eftir kola og lúðu en hentu þorski sem var verðminni ytra. Togarar vargar í véum á grunnmiðum smábáta og hataðir af landsmönnum og landráðamenn þeir Íslendingar sem réðu sig á breska togara, m.a. til þess að vísa á góð mið. Frá einum slíkum segir Eiríkur skipherra Kristófersson í ,,Á stjórnpallinum", bls. 50.
Sjómenn tóku samt að hirða brottkastið, komu sínum manni um borð, sem sá um að blóðga og borguðu stundum fyrir með prjónlesi eða áfengi. Sjá og 1910.

Áþekkar sögur af ,,viðskiptum" á miðunum milli Mýrdals og Eyja eru í bók Stefáns Hannessonar, Á valdi vorsins, bls. 189.

Guðm. G. Hagalín: ævis. Haraldar Böðvarssonar, Í fararbroddi I, 132: ,,Þá var komið árið 1896 þegar öflugri togarar, 150-200 lesta, birtust á Faxaflóa og bátar Akurnesinga reru í áratug með ,,brandí” í stað veiðarfæra út til Englendinga og fengu í staðinn fisk". Koma enskra togara á miðin segir Hagalín engu minna áfall en Suðurlandsskjálftinn það sama ár. Og Árni Gíslason: Gullkistan, 34 (2. útg.): ,,verðmæti alls vertíðarafla árabáts 1944 líkt því er togari nær í einu góðu kasti".
Hvað segði hann um 2.000 tonna köstin nú á tímum?

Gísli Jónsson, Frá foreldrum mínum, bls. 90: ,,Breskir togarar létu greipar sópa um hin venjulegu fiskimið, allt upp í landsteina. Þeir létu sér ekki nægja að taka brauðið þannig frá fátækum fiskimönnum heldur hirtu þeir jafnframt veiðarfæri þeirra í vörpur sínar, svo að það mátti heita ógerlegt að leggja línu í sjó".

Ágúst Guðmundsson frá Halakoti, Þættir af Suðurnesjum, bls. 17: ,,...útgerðin féll þar niður (við Vogastapa) 1894. - Þá komu togararnir hér, fóru á grynnstu mið og sópuðu á burt öllu lifandi úr sjónum, svo að fjöldi manns varð að flýja úr bestu veiðistöð þessa lands, sem var við sunnanverðan Faxaflóða allt frá Garðskaga. - Þannig var hernám Englendinga við Faxaflóa 1895".
Höfundur, Á.G., er sonur Katrínar Andrésdóttur Magnússonar, Syðra-Langholti, Hrunamannahreppi, þ.e. bróðurdóttir Helga alþm.í Birtingaholti, sjá hér 1872.

Jón Þ. Þór, Höndlað við Pollinn, bls. 118: ,,Bretar litu á Ísland og Íslandsmið sem áhrifasvæði sitt. Togaramenn ...drógu vörpur sínar uppi í landsteinum og skeyttu engu þótt þeir yllu tjóni á bátum og veiðarfærum Íslendinga. Danir reyndu hvað þeir gátu til að vernda hagsmuni þegna konungs síns en fengu ekki rönd við reist og neyddust árið 1901 til að semja við Breta um mun þrengri landhelgi en þeir höfðu áður krafist hér við land".

Gísli Ágúst Gunnlaugsson segir í Sögu 1980, að Danir hafi viljað allt til vinna að halda góðri sambúð við Breta vegna útflutningshagsmuna (til Englands) og landamæradeilna við Þjóðverja. Því hafi þeir reynst Bretum mjög eftirlátir þegar Íslendingar áttu í hlut.

Samhljóða Haraldi Böðvarssyni – t.d. um brottkast - er lýsing Kristleifs Þorsteinssonar á Akurnesingum, bls. 247 í II. bindi Úr byggðum Borgarfjarðar.
Sjá einnig: Ásgeir Jakobsson: Hafnarfjarðarjarlinn, bls. 109 og
Jón Þ. Þór, grein í Ægi 1981.
Bændablaðið, Kjartan Stefánsson á bls. 16, 7. maí 2020,
sbr. Sturlu í Vogum, Guðmundar Hagalíns.

Myndir

Einnig frá árinu 1889

  • Af klárum falla kempur
  • Ísfirðingar einna nyrst
  • Loks hjá köllum kom til tals
← 1889Ísfirðingar einna nyrst1889 →Loks hjá köllum kom til tals