Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1889
1889
1889

Ísfirðingar einna nyrst

Hljóðbrot0:00

Lag Kálfar tveir í kúamynd

ÍÍsfirðingar einna nyrstá Ísalandi hímaúr vör þar ýttu virðar fyrstvélbáti og síma.

Glúmur Gylfason · 1889

Heimildir og samhengi

Jón Þ. Þór, Saga Ísafjarðar III, 158: ,,Vorið 1889 flutti hann (Ásgeir G. Ásgeirsson, eigndi Ásgeirsverslunar eftir föður sinn) með sér til Ísafjarðar frá Kaupmannahöfn símtól og efni í símalínu, og lagði Guðmundur Pálsson beykir hana á milli Árnabúðar í Miðkaupstað og Faktorshússins í Neðstakaupstað þá um sumarið. Önnur lína var síðar lögð frá Faktorshúsinu í dömubúð Ásgeirsverslunar, sem var við Aðalstræti 20”.
Sjá 1847 og 1852.

Sama heimild: Talsími fyrst notaður í Bandaríkjunum 1876, Danmörk 1877. (1902). Saga Ísafjarðar segir neðanmáls að sími hafi komið um líkt leyti á Seyðisfirði.

Skv. Minningum Eyjólfs Guðmundssonar á Hvoli, útg. 1990, Örn og Örlygur, kom sími á milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur 1890 og olli svo hörðum pólitískum deilum að frambjóðandi, sem var forsvarsmaður þeirra sem að símanum stóðu, féll í kosningum og kemur heim við það sem Knud Zimsen segir af tilraun til símafélags í Reykjavík og ekki náði lágmarksfjölda þátttakenda. Bærinn vaknar, 337: ,,Mér var yfirleitt svarað því til, að ekki væri svo af Íslendingum dregið, að þeir gætu ekki komist á milli húsa ef þeir ættu erindi. Svona bjánalæti yrðu einungis til þess að gera fólk latt og makrátt". (Sbr. vatnsveitu Rvk. 1907 og 1909).

Vefurisafjordurhotels.is (opnast í nýjum flipa)

Vefurboreaadventures.com (opnast í nýjum flipa)

Vefurisavia.is (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1889

  • Af klárum falla kempur
  • Nú Tjallinn fer að toga,
  • Loks hjá köllum kom til tals
← 1889Af klárum falla kempur1889 →Nú Tjallinn fer að toga,