Þórdís til Skálholts er flúin í felur
Lesið
Þórdís til Skálholts er flúin í felurfólkið í landinu hreppstjóri telurPrentsmiðju Brynjólfur biskupi selurúr bókunum Arnæus velur - og stelur.
Heimildir og samhengi
Þórdís Jónsdóttir (1704) flýr til systur sinnar, Sigríðar (d. 1730) biskupsfrúar undan eiginmanninum, jungkæra Magnúsi Sigurðssyni (1651-1707), Bræðratungu. Þær systur dætur Guðríðar Þórðardóttur (1645-1707) Jónssonar pr. Hítardal, og Jóns (bauka) Vigfússonar, síðast Hólabiskup - sjá 1643, 1771, 1773,1674, 1704.
Fitjaannáll II, 351: ,,Þá var uppskrifað eftir kongl. Majest. skikkan.. af hreppstjórum hverrar sveitar á öllum bæjum allt fólk með aldri og nafni og embætti ásamt sveitarfólki og umhleypingum sem til gistingar voru á bæjum næstu nótt fyrir páskadaginn”.
Neðanmáls ritar Hannes Þorsteinsson: ,,Frumritið var um 200 ár í Ríkisskjalasafni Dana svo að enginn vissi af því. Það er nú eign Þjóðskjalasafnsins. 1925 byrjaði Hagstofan að gefa út þetta stórmerka rit á kostnað ríkissjóðs.”
Manntalið fannst 1914 þegar Jón Þorkelsson, þjóðskjalavörður, lét leita að því. Því sýnist manntalið vera bitlingur, réttur Árna og Páli vegna togstreitunnar við L. Gottrup, af því að kóngur vildi ekki að ,,Landet inden kort Tid vorde öde". Sjá 1701 og 1702.
Jarðabók þeirra félaga útg. 1913 til 1943, en áður ,,skyldu sýslumenn senda jarðabók sem fylgiskjöl með reikningum og voru þessar elstu varðveittu heildarjarðarbækur teknar saman 1681/1686 kennd við fógeta Johan Klein, og önnur 1695/1697 og voru í vörslu rentukammers í Kaupmannahöfn”. (Íslands saga E. Laxness II, 24). Styrkir það tilgátuna um bitlinginn. Tilvísun: Eldur á Möðruvöllum, bls. 57.
Hólabiskup, Björn Þorleifsson, fær prentsmiðju Guðbrands á 500 rd. frá Brynjólfi Þórðarsyni á Híðarenda. Síðar endurgreitt vegna óljóss eignarréttar. Biskup flutti prentverkið norður á 16 hestum og fékk prentarann með í kaupbæti, Martein Arnoddsson, sem verið hafði við prent í 6 ár erlendis. (P. E. Ól., Saga Íslendinga V, 244).
Skv. ævisögu Árna Magnússonar eftir Má Jónsson, bls. 342, gat Árni af eðlilegum ástæðum ekki alltaf skilað bókum sem hann fékk að láni til afritunar og stundum illa lagt út fyrir honum.
Hann prúttaði ekki á Íslandi en þeir sem ekki gáfu bækurnar settu upp lægra verð en hann hefði líklega boðið – segir Már.
Í Íslandsklukku Halldórs Laxness segir Jón Marteinsson: ,,...og aldrei heyrðist hann prútta um verð".
En í brunanum 1728 fórust frumrit sem Árni hafði að láni til afritunar, en ekki hirt um að skila,
Sbr. og Torfi K. Stefánsson Hjaltalín: Eldur á Möðruvöllum, bls. 93.
FréttBændablaðið (opnast í nýjum flipa)
FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)
FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)
FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)