Magnús Skálholts- mæðir stól
Lag Syngur lóa í laufgum mó - Bj.Þ. 868
Magnús Skálholts- mæðir stólog mótmælir í ræðumað Arnæus og Íslandssólaðeins fletti skræðum.
Heimildir og samhengi
Fitjaannáll II, 354: ,,Á alþingi dæmdar stórar sektir á Magnús Sigurðsson í Bræðratungu (1702) fyrir óskikkanlegt hneykslunarbréf, sem hann hafði tilskrifað prófessor Árna Magnússyni”.
Árni var þá staddur í Skálholti er Magnús á að hafa lesið upp bréfið, en hann meinti að Árni tældi frá sér konuna.
(Öldin átjánda; Már Jónsson: Árni Magnússon – ævisaga, bls. 223). Magnús las bréf þetta upp að lokinni messu í Skálholtskirkju í október 1703. Árni kærði athæfið og Eiríkur Jónsson birtir ákæruna í Rætur Íslandsklukkunnar, bls. 234.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Magnús jungkæri Sigurðsson (1651-1707), bar nafn föðurafa síns, Baskaskyttunnar 1615. Þórdís (1671-1741) dóttir Bauka-Jóns Vigfússonar var síðari kona hans, (1643-1690) sjá 1671, 1673, 1674, 1688, 1690.
Árni Magnússon (1663-1730) prófessor, sjá 1701, 1702, 1703, 1705, 1707, 1708, 1712, 1728. (Ísl. æviskrár).