Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1704
1704
1704

Mjög nú þótti merkilegt

Hljóðbrot0:00

Lag Syngur lóa í laufgum mó - Bj.Þ. 868

MMjög nú þótti merkilegtog margur þar um rengdurað engri á Þingi í ár var drekktog enginn þjófur hengdur!

Glúmur Gylfason · 1704

Heimildir og samhengi

Enginn hengdur á Þingvöllum, en skv. Hestsannál, II, bls. 555, var hengdur þjófur á Kjalarnesi og skv. Öldinni átjándu var Steinunni, konu Sæmundar Þórarinssonar, annars tveggja bænda frá Árbæ, drekkt í Kópavogslæk og friðill hennar, Sigurður Arason, hinn bóndinn í Árbæ, hálshöggvinn þar nálægt. Hann hafði fyrirkomið sambýlismanni sínum fyrir þráláta áeggjan Steinunnar.
Samkvæmt alþingisbók voru árið áður hengdir tveir þjófar sem legið höfðu úti á Reykjanesskaga og soðið mat sinni í Hvernum eina. Vegna ungs aldurs var látið nægja að húðstrýkja þann þriðja. Þá var og einni konu drekkt.

,,Á Þingvöllum voru með nærfellt fullri vissu 72 menn (karlar og konur) teknir af lífi að undangengnum dómum. Þar af 30 hálshöggnir, 15 hengdir, 18 konum drekkt, og 9 galdramenn eða guðlastarar brenndir. Er þá miðað við árabilið frá 1602 til 1752, þegar síðast var þar maður hálshöggvinn".
Tekið af Vefurarnastofnun.is (opnast í nýjum flipa)

Dr. Steinunn Kristjánsdóttir í fyrirlestri 9/2 2019:
,,75 þjófar teknir af lífi á Íslandi á 174 ára tímabili, sá fyrsti árið 1584 en síðasti árið 1758”.

Í manntalinu ári fyrr fá 7 menn starfsheitið böðull og voru jafn margir titlaðir kennarar ef skólameistarar eru með taldir.
Starfssvið böðla var ærið: Hýða og /eða hengja þjófa, höggva aðra glæpamenn, drekkja konum og kveikja galdramönnum bálköst.
Ætla má að þeir hafi komið að frágangi á vettvangi að fullnustu dóma lokinni.

Umgangsvísa frá 17. öld:
Berja, gelda, bíta slá
blinda, klóra, flengja
brenna, reka útlegð á
aflífa og hengja.

Um þetta efni ritar Sverrir Kristjánsson kaflann Alþingi í aldaspegli í Bókinni Horfin tíð.

Helgi Þorláksson, Á sögustöðum, bls. 65: ,,Um 1970 hafði vaknað áhugi á heldur vanræktum kafla í sögu Þingvalla ...ekki síst hvernig alþýðan birtist í dómabókum og varð að þola þungar líkamsrefsingar ...harkalega dóma, hengingar, hálshögg, brennur og drekkingar. ...Um 1970 var hljómgrunnur hérlendis fyrir að heyra hvernig Íslendingar hefðu kúgað Íslendinga"

Myndir

Einnig frá árinu 1704

  • Magnús Skálholts- mæðir stól
← 1704Magnús Skálholts- mæðir stól1705 →Páll Vídalín gerði við Sigurð sætt