Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1705
1705
1705

Páll Vídalín gerði við Sigurð sætt

Hljóðbrot0:00

Lag Sá frjáls við lögmál

PPáll Vídalín gerði við Sigurð sættsíðar þó meira vildien sá sem hyggst deila við Einarsnesættathuga gang sinn skyldi.

Glúmur Gylfason · 1705

Heimildir og samhengi

Már Jónsson: Árni Magnússon – æfisaga: ,,Um sama leyti (1705) sömdu Páll og Sigurður Björnsson um það fyrir milligöngu Árna (Magnússonar) að Páll tæki við lögmannsembættinu en Sigurður héldi hálfum launum”.

Þremur árum síðar, 1708, gróf Páll upp áratugagamlan vafasaman dóm Sigurðar og dæmdi hann frá þvi embætti sem hann gegndi ekki lengur.
Oddur Sigurðsson, er Páll hafði hýtt ~1695, skrifaði þá stiptamtmanni, Gyldenlöve, að sá leikur væri til þess gerður að ná af Sigurði þeim 60 rd. sem hann hélt eftir árlega af lögmannstekjum skv. samningnum við Pál.

Lm. Sigurður Björnsson (1643-1723) bjó á Saurbæ á Kjalarnesi frá 1687 til dd., kona hans var Ragnheiður Sigurðardóttir, lm. Jónssonar í Einarsnesi.
Athugasemdin um Einarsnesætt má vísa til þess að sonur lm. Sigurðar, nafni hans, Sigurður eldri, fór tvívegis utan og fékk snúið fyrrnefndum dómi Páls frá 1708. Hann var skv. Íslenskum æviskrám ,,lagamaður mikill, harður og fylginn sér, talinn einn hinna helstu sýslumanna á sinni tíð, átti oft málaferli og hélt jafnan hlut sínum."
Sonur hans var Brynjólfur, sýslumaður í Hjálmholti, sá sem deildi við Jón Thorkillíus, Skálholtsrektor 1736, sem leiddi til sendifarar Harboes.

Í Íslandsklukkunni er lm. Sigurður Björnsson gerður að föður Snæfríðar og gefið eftirnafnið Eydalín.
Heimildir og tilvísanir: J. Aðils, O. Sig. ævisaga; Öldin 18.
Már Jónss.on: Árni Magnússon, ævisaga, bls. 223, 215.
Íslenskar æviskrár.
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)

Myndir

← 1704Mjög nú þótti merkilegt1706 →Gríska, hebreska, útræði og