Árið 1823

t.d.

3 vísur frá árinu 1823
  1. 1823Lag: Allt fram streymir endalaust

    Dánumenn eru dánir tveir

    en dauður ei sá kvittur
    að öðrum þeirra - en ekki Geir
    aldur væri styttur.

    Vigfús (1787-1843) lögfræðingur, sonur am. Stefáns Þórarinssonar á Möðruvöllum starfaði í kanzellíinu frá 1811, en var leystur frá starfi vegna geðveiki og er kominn til Íslands 7. janúar þetta ár. ,,Er mjög tíðrætt um…

    Hlusta
    Am. Stefán ThorarensenGrindadrápAðalstræti 10+5
  2. 1823Lag: Eins í vöku og eins í blund - Bj.Þ. 829

    Þjóð að fjölgi þurfi tvo

    það ku vera sannað
    en fátæklingar skulu sko
    skemmta sér við annað.

    https://is.wikipedia.org/wiki/Hj%C3%B3naband: ,,Alþingissamþykkt frá árinu 1720 (sjá 1721) ákvað að aðeins „bjargálnamenn“ mætti vígja í hjónaband og var öreigum títt meinað að giftast. Ísland heyrði enn undir Danmörk á…

    Hlusta
    Mynd Nínu Sæmundsson, Móðurást
  3. 1823

    Kötlu enn í brók varð brátt

    búinn Öfjörð vandi
    sýslumanni fjörs varð fátt
    í flóði á Mýrdalssandi.

    Í Kötlugosi fórst sýslumaður, Þórarinn Öfjörð, f. 1793, við þriðja mann ásamt reiðhestum í vatnsflóði á Mýrdalssandi 14. sept. 1823. Þórarinn hét nafni móðurafa síns Jónssonar sm. á Grund í Eyjafirði og ólst m.a. upp…