Dánumenn eru dánir tveir
Lag Allt fram streymir endalaust
Dánumenn eru dánir tveiren dauður ei sá kvitturað öðrum þeirra - en ekki Geiraldur væri styttur.
Heimildir og samhengi
Vigfús (1787-1843) lögfræðingur, sonur am. Stefáns Þórarinssonar á Möðruvöllum starfaði í kanzellíinu frá 1811, en var leystur frá starfi vegna geðveiki og er kominn til Íslands 7. janúar þetta ár. ,,Er mjög tíðrætt um það í skjölum að hann hafi í brjálsemi orðið föður sínum að bana" með stungusverði 12. mars. (Heimild: Ísl. æviskrár V. bls. 61).
Víst er að Vigfús varð mannsbani 1825 og fluttur á St. Hansspítala í Hróarskeldu. eftir það.
Geir biskup Vídalín (f. 1761) fór um kvöld frá heimili sínu til að horfa á strandaða grindhvali við Ánanaustaeiði, ofkældist og veiktist af lungnabólgu og dó 20. september.
Geir var skipaður biskup yfir Íslandi með konungsbréfi í nóv. 1801. Hann bjó áfram á Lambastöðum til 1807. Þá flutti hann í Aðalstræti 10Wikipedia (opnast í nýjum flipa), sem eftir það var nefnt Biskupsstofan. Geir biskup var orðlagður fyrir gestrisni og kallaður Geir biskup góði. Hann sást ekki fyrir í greiðasemi sinni svo að heimilið var dýrt í rekstri. Hann varð gjaldþrota og skipuð nefnd sem sá um fjármál hans og skammtaði honum meðal annars mjöl, smjör, blek og tóbak til vikunnar.
FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)
AlfræðiWikipedia (opnast í nýjum flipa)
Geir biskup þótti allra manna orðheppnastur. Eitt var það að hann vissi um tvo staði hvar aldrei slokknaði eldurinn: ,,Það er hjá mér og í helvíti". (1833)
Grænfriðungar trufla grindhvalaveiðar í Færeyjum:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)