Árið 1906

t.d.

2 vísur frá árinu 1906
  1. 1906Lag: Kindur jarma í kofunum - Bj.Þ. 618

    Friðrik áttundi tróð á trón

    togari í smíðum heita skal Jón
    öndunum mistókst óperasjón
    Alliance, Dagsbrún og telefón.

    Kongen er död! (Chr. IX.) Leve kongen! (Fr.VIII.). https://www.youtube.com/watch?v=r8rb201KPIM Margir helstu menn þjóðarinnar spiritistar. Fremstir fóru ritstjórarnir Einar H. Kvaran (1859-1938) og Björn Jónsson…

    Hlusta
    Friðrik VIII.MiðilsfundurVerkamannfélagið Dagsbrún+4
  2. 1906Lag: Augun mín og augun þín

    7. apríl ei mun né má

    úr minni voru snarast
    frá höfuðstaðnum horfðu á
    heila skipshöfn farast.

    ,,Einn mesti óhamingjudagur sem yfir Ísland hefur komið” sagði séra Ólafur Ólafsson (1855-1937). Staddir milli Viðeyjar og lands röðuðu 20 skipverjar kútters Ingvars sér í reiða og á borðstokk. Mörg hundruð Reykvíkingar…

    Hlusta
    Viðey: Akkeri Ingvars, sem kafarar DiveExplorer sóttuKafarar DiveExplorer með akkeri IngvarsMinningarskjöldur um áhöfn Ingvars +1