Árið 1754

t.d.

3 vísur frá árinu 1754
  1. 1754Lag: Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903

    Á Hólum pilta fjóra finnur

    og fækkar enn nú meir.
    Viðeyjarstofa og vígður Finnur.
    Í Vatnsfirði Hjalti deyr.

    Hafís við Norðurland og engin sigling þangað. Matarskortur á Hólum, skólasveinum vísað burt, öllum nema þeim fjórum sem voru á síðasta skólaári. Síðan varð ekkert skólahald 1756-7 af sömu ástæðu. Viðeyjarstofa reis.…

    Hlusta
    ViðeyjarstofaAuðunarstofa enn á Hólum - tilgátuhúsFinnur Jónsson, tilgáta+1
  2. 1754Lag: Vatnsdælingastemma - Bj.Þ. 838

    Viljum ekki versla nú

    vert er ei á meðan
    danskra veljum vera hjú
    með vaðið fyrir neðan

    Úr ritgerð Ásgeirs Jónssonar, https://notendur.hi.is/ajonsson/sag/Skulifogeti.pdf: ,,1754-55 féllu margir úr hungri og landsmenn sameinuðust gegn Hörmöngurunum sem hrökkluðust frá Íslandsversluninni árið 1758. Nú áleit…

    Hlusta
    Skúli Magnússon, forstjóri Innréttinganna
  3. 1754Lag: Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903

    Kóngur náðar ekki auma.

    Úti í Mikladal
    Guðrún pokann sjálf fær sauma
    sem í drekkja skal.

    Guðrún Valdadóttir, ráðskona aldraðs manns, Sigurðar ,,elli”, ól honum barn, en hafði fyrr á árum eignast barn með (stjúp)syni hans. (Íslands Árbók, Annálar V, 36). Af annarri heimild, Hrafnagilsannál, IV, 684, má…

    Hlusta
    Séð yfir Patreksfjörð úr Mikladal til MikladalsFriðrik V. kóngurStrigapoki+2