Árið 1753

t.d.

3 vísur frá árinu 1753
  1. 1753Lag: Kálfar tveir í kúamynd

    Mörgum þykir brotið blað

    býsn og nálgast óra
    ræsir veitti Reynistað:
    ráðsmaðurinn Þóra!

    Saga frá Skagfirðingum I, 83: ,,Var þá veitt Reynistaðarklaustur frú Þóru Thorlacius Björnsdóttur (1705-1767), ekkju Halldórs biskups, og þótti mönnum það nýjung sem margt annað, er þá gekk yfir. Voru þar þá á hennar…

    Hlusta
    Alabasturs reredo frá ReynistaðFriðrik V.
  2. 1753Lag: Kálfar tveir í kúamynd

    Befalar kóngur kúrantmynt

    kunnum á það giska
    að það verði illa kynnt
    ennþá viljum fiska.

    Saga frá Skagfirðingum I, 83: ,,Á þeim missirum kom courantsgjald fyrst hingað í land, en það létust þá margir menn ekki mega reikna". ,,1753 var kúrant ríkisdalur algengasti gjaldmiðillinn bæði í Danmörk og Noregi og…

    Hlusta
    Gjaldmiðillinn KurantGjaldmiðillinn fiskurFriðrik V.
  3. 1753Lag: Fyrr var oft í Koti kátt

    Einar fékk ei eintómt lof

    af öllum skólapiltum
    refsa þótti þar um of
    þekkum sem og spilltum
    allt um kenndu öðru þá
    að eigi rektor krypi
    skyldi um stól og sýslu sjá
    sýnt um dauða gripi.

    Páll Eggert Ólason, Íslenskar æviskrár l, bls. 366, um Einar Jónsson (1712-1788), rektor Skálholtsskóla: ,,Var að nokkru leyti alinn upp af Jóni biskupi Árnasyni í Skálholti. Tekinn í Skálholtsskóla 1728, stúdent þaðan…