Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1753
1753
1753

Mörgum þykir brotið blað

Hljóðbrot0:00

Lag Kálfar tveir í kúamynd

MMörgum þykir brotið blaðbýsn og nálgast óraræsir veitti Reynistað:ráðsmaðurinn Þóra!

(ræsir: konungur)

Glúmur Gylfason · 1753

Heimildir og samhengi

Saga frá Skagfirðingum I, 83:
,,Var þá veitt Reynistaðarklaustur frú Þóru Thorlacius Björnsdóttur (1705-1767), ekkju Halldórs biskups, og þótti mönnum það nýjung sem margt annað, er þá gekk yfir. Voru þar þá á hennar dögum nær 40 manns og nær 40 kúa.
Biskupslaust var þá í landi því að dáinn var Ólafur Gíslason í Skálholti, en Finni, prófasti í Reykholti ...var ætlað Hólabiskupsdæmi meðan ei spurðist andlát Ólafs biskups, en þá er það spurðist kaus hann Skálholtsumdæmi heldur".

Þóra klausturhaldari var að föðurnum hálfsystir Steinunnar konu Skúla fógeta, en faðir þeirra, Björn, var sonur sm. Jóns, Þorlákssonar Hólabiskups, Skúlasonar. (1770, 1772).
Halldór Hólabiskup, lést 28. október 1752. Getur verið að klausturumboð Þóru, ekkju hans, megi skoða í ljósi þeirrar réttarbótar sem prestsekkjur fengu 1650 og hér er fjallað um það ár?

Áður hafði konu verið veitt klausturumboð. Það var þegar lm. Halldór Ólafsson stefndi í þrot, eitt sinn sem oftar, þá var Halldóru konu hans, Jónsdóttur, Holtastöðum, Björnssonar á Mel, Jónssonar Hólabiskups, Arasonar, veitt umboð Möðruvallaklausturs ef takast mætti Halldóri að rétta við fjárhaginn.
Katarina Peters, ekkja sm. og klh. L. Gottrup, d. 1721, hafði haldið lénum hans um tíma. og eftir lát Halldórs Bjarnasonar á Þingeyrum, 1800, hélt ekkja hans, Ragnheiður Einarsdóttir, umboði klaustursins þar. Einnig þessar veitingar gætu rímað við réttarbætur prestsekkna frá 1650.
Þá höfðu konur stundum veitt Reynistaðarklaustri efnalega forstöðu, en hvort mágsemd Þóru við Skúla fógeta hefur haft nokkuð að segja veit nú enginn.
Síðast en ekki síst má þessi ráðstöfun hafa greitt götu þess, að ekkju Halldórs Vídalín Bjarnasonar, d. 1800, Ragnheiði Einarsdóttur, - foreldrar ReynistaðarbræðraWikiwand (opnast í nýjum flipa) - var veitt klausturumboðið 1803-1814.

Í klausturhaldaratíð Þóru Björnsdóttur (Thorlacius) brann klaustrið 1757.

Reynistaðarlaustrið var stofnað árið 1295 fyrir fé sem Gissur jarl Þorvaldsson, dáinn 1268, hafði gefið í þeim tilgangi. Konur veittu að sjálfsögðu andlega forstöðu sem priorinnur eða abbadísir.

Alabasturmyndirnar frá Reynistað eru ,,reredo", sem er heiti fyrir skraut á bakhlið altaris.

Myndir

Einnig frá árinu 1753

  • Befalar kóngur kúrantmynt
  • Einar fékk ei eintómt lof
← 1752Vísindafélagið ferðabók1753 →Befalar kóngur kúrantmynt