Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1752
1752
1752

Vísindafélagið ferðabók

Hljóðbrot0:00

Lag Fyrr var oft í Koti kátt

VVísindafélagið ferðabókfól Eggert og Bjarnakanna allt að ysta snókyfirborð og kjarna.Skálholtsbiskup bágt þeim tók:,,Bölvað flan að tarna”.Um Heklu fráði og höfuð skók:,,Helvíti er þarna”!

....snókur: hali, rani.

Eggert segir frá rottu á Rifiog rekur til nýlegs strandsen Bjarni að völskur varla lifií veðrum þessa lands.

Glúmur Gylfason · 1752

Heimildir og samhengi

Eftir Heklugöngu Eggerts og Bjarna á Jónsmessu 1750 kaus Det Kgl. Danske Videnskabsselskab að fela þeim Íslandsrannsókn fremur en dönskum aðalsmanni, Horrebow, sem sneri heim við svo búið eftir dvöl á Bessastöðum samtímis Skúla.

Biskup, Ólafur Gíslason, á ekki að hafa hrósað þeim Bjarna og Eggert við komu þeirra til Skálholts úr Hekluleiðangrinum. Gígur Heklu var talinn einn af forgörðum helvítis, gott ef ekki aðalinngangurinn, sbr. Gunnarshólma Jónasar og þýskt blótsyrði.
Ferðabók Eggerts og Bjarna kom út á dönsku 1772, síðan fljótlega á þýsku, frönsku og ensku, en á íslensku 1943. Þar segir frá trú þess tíma, að á Heklu væru bæði leirhverir og hverir sem gysu auk annars eldi og reyk, en í loftinu svifu hröfnum líkir ránfuglar með oddhvassar járnklær og gogg.

Halldór Laxness, Íslandsklukkan: ,,Allir menn í Hollandi könnuðust við Hekkenfeld á Íslandi þar sem helvíti brennur undir og fýstust mjög að heyra tíðindi af fjalli þessu".

Vigfús Guðmundsson frá Keldum, oft kenndur við Engey, tekur upp hanskann fyrir ósigldan biskup, Ólaf Gíslason, í bók sinni, Oddi á Rangárvöllum, bls. 84, sem þess vegna hafi notið takmarkaðrar virðingar og telur fyrst vitnisburð hans frá Skálholtsskóla: ,,...ekki meira en meðalgáfur til náms en iðni hans og ástundun var alveg sérstök ...einnig lagði hann fyrir sig læknisfræði og hjálpaði veikum án endurgjalds jafnt eftir að hann varð biskup ...lagði sérstaka fyrirmyndar rækt við barnafræðslu. ...Segja má að hann (Harboe) þrengdi prófasti (Ólafi) í biskupssætið".

Vefurlavacentre.is (opnast í nýjum flipa)

Jón Helgason, Þrettán rifur ofan í hvatt, bls. 7 ,,...höfðu sögugerðarmenn mikilla þjóða það í bókum, að í einu fjalli þessa harðfiskalands brynni eldur sá er æva slokknar, og væri glóðafeykir þessi fordyr helvítis, þangað sem djöflar í liki gamma og drekja þreyttu flug með herfang höfðingja síns í bognum klóm".

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Vísindavefurinn: AlfræðiVísindavefurinn (opnast í nýjum flipa)
,,
Frá 18. öld er ... Íslandslýsing Eggerts Ólafssonar reist á landkönnun þeirra Bjarna Pálssonar á árunum 1752-57. Eggert segir aðeins frá rottum á einum stað á Íslandi, undir Jökli á Snæfellsnesi, þangað sem þær hafi borist nýlega með skipi sem hafi strandað undan Rifi. Eggert notaði latínuheiti sem á við svartrottuna (Rattus rattus)".

Í ljóði sínu, Ísland, ,,Þú nafnkunna landið", nefnir Bjarni Thorarensen (1786-1841) rottur völskur og telur þær ekki munu þola íslenskt veðurfar í dreifbýli frekar en vellystin, þ.e. munaður. Ályktanir Gunnars Karlssonar um útbreiðslu rottu á Vísindavefnum hér að ofan eru í takt við Eggert Ólafsson og Bjarna Thorarensen.

Þó vellyst í skipsförmum völskunum meður
vafri að landi, ég skaða ei tel;
því útfyrir kaupstaði íslenskt í veður
ef hún sér vogar, þá frýs hún í hel.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)


Myndir

Einnig frá árinu 1752

  • Þingvöllum dofnar nú óðum yfir
← 1752Þingvöllum dofnar nú óðum yfir1753 →Mörgum þykir brotið blað