Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1752
1752
1752

Þingvöllum dofnar nú óðum yfir

Hljóðbrot0:00

Lag Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903

ÞÞingvöllum dofnar nú óðum yfireftir þettaþví hér eftir allur andskotinn lifirog ekkert að frétta.

Glúmur Gylfason · 1752

Heimildir og samhengi

Síðasta aftaka á Þingvöllum.
Sýslumenn vildu losna sem fyrst við þjófa og aðra ólífismenn annað hvort til annars heims eða af landi burt, en fanga var erfitt að gæta. Þessu lýsir Björn Th. Björnsson í Haustskipum.

Skv. eftirfarandi tilvitnun í Vísindavefinn er maður síðast aflífaður á Þingvöllum 1752:
,,Á Þingvöllum voru með nærfellt fullri vissu 72 menn (karlar og konur) teknir af lífi að undangengnum dómum. Þar af 30 hálshöggnir, 15 hengdir, 18 konum drekkt, og 9 galdramenn eða guðlastarar brenndir. Er þá miðað við árabilið frá 1602 til 1752, þegar síðast var þar tekinn maður af lífi, hálshöggvinn".

Orðbragðið sótt til sm. Torfa Erlendssonar 1644, sem hann hafði um séra Hallgrím Pétursson: ,,Nú vígja þeir allan andskotann".

AlfræðiNáttúruminjasafn (opnast í nýjum flipa)

FréttVísir (opnast í nýjum flipa)

Vefurarnastofnun.is (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1752

  • Vísindafélagið ferðabók
← 1751Laga- varðar lítt um staf1752 →Vísindafélagið ferðabók