Árið 1750

t.d.

3 vísur frá árinu 1750
  1. 1750Lag: Vorið góða, grænt og hlýtt

    Lesi fyrst og læri svo

    lýkst þá upp fyr'ir barni.
    Efst á Heklu eygjum tvo,
    Eggert þar og Bjarni.

    Kongl. rescripti um confirmationina, undirskrifað af L. Harboe í Skálholti 5. ágúst 1744, birt með Alþingisbók 1750, 509: ,,So að ungdómurinn megi uppvekjast til að vilja læra með kostgæfni að lesa á bók, þá viljum vér…

    Hlusta
    FermingHeklaAC Milan
  2. 1750Lag: Langt fyrir utan ystu skóga

    Fyllt hefur ekki fjórða tuginn

    fógeti íslenskur settur nýr
    ekkert vantar upp á duginn
    aldrei Skúli af hólmi flýr.
    1 erindi til viðbótar

    Saga frá Skagfirðingum I, 81: ,,Skúli fékk veitingarbréf frá konungi fyrir landfógetaembættinu ...og skorti vetur á fertugan. Má af því marka hve mikinn byr hann hafði, þar sem honum skyldi slíkt veitt vera mitt í því…

    Hlusta
    Skúli Magnússon fógeti
  3. 1750

    Bach í ár þótt yrði nár

    aftur lykjust hlustir, brár
    orgels enn er kóngur klár
    og keisari um aldir þrjár.

    Johann Sebastian Bach (1685-1750) https://www.youtube.com/watch?v=ZK6-x9sdEYo https://www.youtube.com/watch?v=sinmdNkTad0