Einar fékk ei eintómt lof

Lag Fyrr var oft í Koti kátt

Einar fékk ei eintómt lofaf öllum skólapiltumrefsa þótti þar um ofþekkum sem og spilltumallt um kenndu öðru þáað eigi rektor krypiskyldi um stól og sýslu sjásýnt um dauða gripi.

Glúmur Gylfason · 1753

Heimildir og samhengi

Páll Eggert Ólason, Íslenskar æviskrár l, bls. 366, um Einar Jónsson (1712-1788), rektor Skálholtsskóla:
,,Var að nokkru leyti alinn upp af Jóni biskupi Árnasyni í Skálholti. Tekinn í Skálholtsskóla 1728, stúdent þaðan 1731, en fór eigi utan fyrr en 1738 með aðstoð Jóns biskups og skráður í stúdentatölu í háskólanum í Kh. 22. desember 1738, lauk embættisprófi í guðfræði 21. mars 1741, með 3. einkunn, kom þá út samsumars og varð fyrst heyrari (konrektor) í Skálholtsskóla, en rektor þar 3. júní 1746, lét af því starfi 1753 vegna augnveiki, að kallað var, en var raunar vegna hörku og refsingarsemi, og var jafnharðan settur sýslumaður í Snæfellsnessýslu, varð 3. okt. 1754 ráðsmaður í Skálholti og gegndi því starfi 3 ár, settur 28. mars 1768 sýslumaður í Vestmannaeyjum og var það 1 ár. Hann bjó frá því hann kvæntist að Ási í Holtum, en andaðist í Ásakoti.
Hann var vel að sér í mörgum greinum, skáldmæltur". ... Kona(1746) Kristín, f. 17. sept. 1724, Einarsdóttir lögréttumanns að Suðurreykjum í Mosfellssveit Ísleifssonar".
Meðal barna þeirra var Ísleifur, síðast dómstjóri Landsyfirdóms, sem var refsiglaðari en Magnús Stephensen félagi hans í Dómnum. (Sjá 1801).

AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)

Myndir