Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1710
1710
1710

Holdsveiki Björn til bana dró

Hljóðbrot0:00

Lag Herra Guð í himnaríki

HHoldsveiki Björn til bana dróbiskupinn þótti ei laginnþá Passíusálma til prentunar bjóog prýða vildi braginn.

Glúmur Gylfason · 1710

Heimildir og samhengi

Tilvísun í Torfa K. Stefánsson Hjaltalín: Saga Biskupsstólanna, bls. 633:
Lést Hólabiskup Björn Þorleifsson (1692, 1709) er bar nafn móðurafa síns, Björns frá Saurbæ, Rs., Magnússonar prúða. Hann keypti prentsmiðjuna af syni Þórðar Skálholtsbiskups, Brynjólfi ríka (1681 1762), b. á Hlíðarenda og samörfum eftir Þórð biskup fyrir 500 rd. árið 1703 sem endurgreitt var 1724 vegna óvissu um eignarrétt, en hver nýr eigandi kvað prentverkið hafa komið sér ónothæft í hendur og hefði mátt endurnýja það frá grunni og snerist málið mest um hver ætti einkarétt á prentuðu máli í landinu.
Steinn biskup borgaði Þrúði, ekkju Björns biskups, sömu fjárhæð fyrir prentverkið eftir málaþras, sjá hér á eftir.

1723 ,,skaut Páll Vídalín því í brjóst Steini að fara í mál við Brynjólf, son Þórðar biskups, og aflaði sér svo stuðnings Steins gegn Brynjólfi" segir Espólín í Sögu frá Skagfirðingum (sjá 1703).

Þegar prentsmiðjumálið komst á það stig að kóngur vildi að nefnd kannaði það, 1724, þá nennti Brynjólfur ríki ekki að standa í málaferlum og endurgreiddi dalina 500 og runnu þeir til ekkju Björns biskups, Þrúðar Þorsteinsdóttur, en Elín móðir hennar var föðursystir Brynjólfs á Hlíðarenda og til hans fluttist Þrúður 1730 og dó þar að Brynjólfs 1738.
Þau Þrúður og Björn biskup voru barnlaus og hún á framfæri Brynjólfs ríka þegar hún deyr. Brynjólfur lifði til 1762 og hafi dalirnir 500 ratað til hans aftur við lát Þrúðar 1738 þá hefur ráðagerð Páls Vídalín ekki gengið upp - frekar en áætlun hans gegn lm. Sigurði Björnssyni 1705 og sú gegn lm. L.Gorttup1701- sjá þar.

Björn biskup hafði leyft sér að breyta ýmsu í Passíusálmunum og hlotið bágt fyrir segir víða.
Saga frá Skagfirðingum I, 27: ,,Tók nú meistari Björn biskup að láta prenta ...því biskup lést vera skáld”.

Íslenskar æviskrár 1, 239: ,,Hann (Bj.Þ.) hlaut mjög ámæli fyrir breytingar á Passíusálmum síra Hallgríms Péturssonar (pr. 1704) svo að jafnvel níðvísur eru til um hann fyrir það (JS. 472, Svo). ... Hann var veitulll og gestrisinn og hélt sig mjög að höfðingjahætti, góðviljaður öllum, mælskur vel og ritfær ..."

Í Greinargerð Smára Ólasonar við Passíusálmaútgáfu hans 2015 eru taldar þessar breytingar:
14. sálmur 18. vers, 4. vísuorð: af verður með; 16. sálmur 12. vers: held eg hér hafi skeð, verður: hér þó ei hafi skeð.
Í útgáfu Smára birtast textar Passíusálmanna við ,,gömlu lögin" í stílréttum útsetningum fyrir blandaðan kór.

Myndir

← 1709Dýrt varð Helgu Þórð að þekkja1711 →Endar og byrjar Skúlaskeið