Árið 1931

t.d.

4 vísur frá árinu 1931
  1. 1931Lag: Komið er gat á kjólinn minn – Bj.Þ. 849

    Sauðárkrókur kaup- er staður

    þar ku um þetta leyti
    svanni vera sýslumaður
    Sigrún meina´ að heiti.

    Kristmundur Bjarnason, Skagfirskur annáll: ,,29. júní. Dómsmálaráðuneytið setti Sigrúnu M. Jónsdóttur til að gegna sýslumannsembætti á Sauðárkróki í forföllum sýslumanns. Hún hélt manntalsþing, framkvæmdi fógeta og…

    Hlusta
    Sauðárkkrókur
  2. 1931Lag: Sunnudagur Drottins er

    Jakobína Jensdóttir Stær

    jörmunljósa Siglfirðinga.
    Hver í slíkrar fótspor fer?
    Frækna karla af réð stinga
    dygði' ei hestur fann- í fergi
    fór á skíðum, villtist hvergi.

    Forsíðufrétt Neistans á Siglufirði 6. júní er að látist hefði daginn áður ljósmóðir Siglfirðinga til 38 ára, Jakobína Jensdóttir Stær, f. 1866. Guðrún Björnsdóttir frá Kornsá ritar þátt um hana í Íslenskar kvenhetjur,…

    Hlusta
    HéðinsfjörðurHvanndalirSiglufjörður+3
  3. 1931Lag: Dvel ég í draumahöll

    Fast við keipinn Selur sat

    sjaldan þvílíkt skeð.
    Höfuð Tryggva heimta' á fat
    og hafa kónginn með
    pólitísku tökin hörð
    taflið kreppan magnar
    laga- standa verðir vörð
    um Valgerði og Agnar,

    Fjármálakreppa á heimsvísu og ofbeldisfull staða þjóðmála í evrópu á millistríðsárunum, sem íslenskir (námsmenn) fluttu með sér til landsins, er rót þeirra hamrömmu (pólitísku) átaka sem hér verður fjallað um næstu…

    Hlusta
    Tryggvi Þórhallsson, forsætisráðherraKrisján X. 26/9 '45 - 70. afmd.Gunnar Sigurðsson frá Selalæk, alþm.+2
  4. 1931Lag: Se den lille kattekilling

    Steina þótti stemning þyngja

    í strætó sat ei kyrr:
    ,,Hvernig er það, á ekki að syngja"?
    Austfirðingur spyr.

    Hlutafélagið Strætisvagnar Reykjavíkur, SVR, byrjar akstur á einni leið: Lækjartorg, Kleppur (Elliðaárvogur), - Lækjartorg, Framnesvegur. Fargjald 10 til 25 aurar eftir vegalengd, börn 5 aurar. Reykjavíkurbær gerðist…

    Hlusta
    Fyrsti strætisvagninnStrætó á endastöðinni, KleppiÞorsteinn Valdimarsson+1