Árið 1930

t.d.

4 vísur frá árinu 1930
  1. 1930Lag: Sigga litla, systir mín

    KÁ, útvarp, kommar, Grund

    kónginn gaf að líta.
    Er sem köttur hitti hund
    þá Hrifla og læknar kýta.
    1 erindi til viðbótar

    Meðal þess nýja sem stofnað var til þetta ár er það sem talið er upp í vísunni: KÁ: Kaupfélag Árnesinga, kaupfélagsstjóri Egill (1897-1961) Thorarensen (1755), Sölubúð opnuð 2. janúar 1931 í húsinu Sigtúnum gegnt…

    Hlusta
    ÚtvarpsviðtækiDvalar- og hjúkrunarheimilið GrundTraktor árgerð ~1930+9
  2. 1930Lag: Komdu og skoðaðu' í kistuna mína

    Bjarni fékk nemendum Laugarvatns lista/

    langaði að vita hvern settu þeir efst/
    kennari' ei þarf sig við krakkana byrsta/
    því kaupfélagshugsjón í sál þeirra' er fest/
    svo fyrir þeim röðunin varla neitt vefst/
    vita þeir allir að Framsókn er best/
    Jesús í öðru, en Jónas í fyrsta/
    og Jón nokkur Sigurðsson reka fékk lest.

    Eftir að stofnaðir voru Ólafsdals- og Möðruvallaskólar, 1880, byrjuðu hálfrar aldar deilur Sunnlendinga: Fyrst um héraðsskóla eða engan skóla, því að bændur sáu fram á að missa þangað vinnuafl sona sinna. ,,Ekki gætu…

    Hlusta
    Bjarni Bjarnason, skólastjóri LaugarvatniHéraðsskólinn, LaugarvatniJesús, Fjallræðan: sæluboð, salt jarðar, ljós heimsins, dæmið ekki ... +3
  3. 1930Lag: Sigga litla systir mín

    Helgi vildi í Hriflu ná

    Hælið inn á stinga
    en Halldór Laxness fýsti fá
    fleiri brjálæðínga.

    Jónas Jónsson, ráðherra, sem kenndi sig við Hriflu, skipaði Sigvalda Kaldalóns héraðslækni í Keflavíkurhéraði með aðsetri í Grindavík 1929. Læknafélagið brást við með því að reka Sigvalda úr félaginu segir á slóðinni…

    Hlusta
    Helgi H. Tómasson læknir (1896-1958)Jónas Jónsson frá Hriflu (1895-1968)Halldór Laxness+3
  4. 1930

    Ei er kyn þótt illa sigli

    Íslandsbanki í Reykjavík
    fjárglæfra með frændahygli
    í fyrirgreiðslupólitík.

    Björn Þór Hilmarsson, Fjármögnun og fall Íslandsbanka árið 1930. Úr meistaraprófsritgerð við HÍ: ,,Margt bendir til þess að þau mistök sem gerð voru þegar Ísland fékk fullveldi árið 1918 hafi leitt til margra af þeim…