Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1930
1930
1930

Helgi vildi í Hriflu ná

Hljóðbrot0:00

Lag Sigga litla systir mín

HHelgi vildi í Hriflu náHælið inn á stingaen Halldór Laxness fýsti fáfleiri brjálæðínga.

Glúmur Gylfason · 1930

Heimildir og samhengi

Jónas Jónsson, ráðherra, sem kenndi sig við Hriflu, skipaði Sigvalda Kaldalóns héraðslækni í Keflavíkurhéraði með aðsetri í Grindavík 1929.
Læknafélagið brást við með því að reka Sigvalda úr félaginu segir á slóðinniVefurlaeknabladid.is (opnast í nýjum flipa)
og fylgdi því eftir gegn ráðherranum 1930 með ,,stóru bombunni” pólitísku er Helgi Tómasson (1896-1958), yfirlæknir á Kleppi, greindi ráðherrann geðveikan að kvöldi 19. apríl, en árla morguns 20. apríl, svipti Jónas hann stöðunni.
Skopblaðið Spegillinn birti háðkvæði og teiknimynd af Daníel Daníelssyni, dyraverði Stjórnarráðsins, flengríðandi þaðan inn að Kleppi með uppsagnarbréf frá Jónasi til Helga læknis:
Vefurbragi.arnastofnun.is (opnast í nýjum flipa)

Vefurlaeknabladid.is (opnast í nýjum flipa)

Halldór Laxness skrifaði í Tímann, að ef Jónas Jónsson væri geðveikur þá væri óskandi að drottinn gæfi Íslendingum fleiri slíka ,,vitfirrínga". Taldi sig enda hafa síst minni reynslu í að umgangast gáfumenn en Helgi Tómasson ,,vitfirrínga".

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Ólafur Thors var dómsmálaráðherra í forföllum í 39 daga 1932 og rak þá, 13. desember, yfirlækninn á Kleppi, Lárus Jónsson, sem Jónas hafði skipað 1930 í stað Helga Tómassonar og setti Helga aftur í embættið.
HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)

Á slóðinni HeimildFerlir (opnast í nýjum flipa)
er m.a. ræða dr. Gunnlaugs A. Jónssonar 10. nóvember 1996 við afhjúpun minnisvarða um afa hans, lækninn og tónskáldið Sigvalda Kaldalóns.
Þar segir m.a: ,,...ræktarsemi ykkar og trúfesti við minningu Sigvalda Kaldalóns er í fullu samræmi við hlýhug Grindvíkinga og velvild í hans garð alveg frá byrjun, og raunar í takt við aðdragandann að því að hann settist að hér í Grindavík þegar hann var skipaður héraðslæknir í Keflavíkurhéraði árið 1929 í óþökk Læknafélagsins".
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1930

  • KÁ, útvarp, kommar, Grund
  • Bjarni fékk nemendum Laugarvatns lista/
  • Ei er kyn þótt illa sigli
← 1930Bjarni fékk nemendum Laugarvatns lista/1930 →Ei er kyn þótt illa sigli