KÁ, útvarp, kommar, Grund
Lag Sigga litla, systir mín
Lag Dvel ég í draumahöll
KÁ, útvarp, kommar, Grundkónginn gaf að líta.Er sem köttur hitti hundþá Hrifla og læknar kýta.
Alþing á Þingvöllum, heilagt og hátt:hengingar, drekking, logien Alþingishátíð víst hefði eins mátthalda í Kópavogiþví þar gerðu Bjelke og Brynjólfur sáttsem bætti úr stjórnarháttumen landsfeður kusu að láta með fáttsvo lengi var ekki hátt um.
Heimildir og samhengi
Meðal þess nýja sem stofnað var til þetta ár er það sem talið er upp í vísunni:
KÁ:
Kaupfélag Árnesinga, kaupfélagsstjóri Egill (1897-1961) Thorarensen (1755),
Sölubúð opnuð 2. janúar 1931 í húsinu Sigtúnum gegnt Ölfusárbrú, sem Egill hafði áður átt og haft verslun.
Tilvísun: Guðjón Friðriksson, Samvinna á Suðurlandi III, kafli 18.
FréttVísir (opnast í nýjum flipa)
FréttVísir (opnast í nýjum flipa)
Vefurbooks.google.is (opnast í nýjum flipa)
RÍKISÚTVARPIÐ
Skagfirskur annáll Kristmundar Bjarnasonar: ,,útvarpstæki ...kostuðu nokkurra mánaða vinnulaun þá. ...Í sveitum lögðu menn á sig langar göngur bæja á milli til þess að geta hlýtt á útvarp hjá náunganum”.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Vefuropen.spotify.com (opnast í nýjum flipa)
KOMMAR
Eftir tveggja ára undirbúnig stofnaður 29. nóvember byltingarsinnaður Kommúnistaflokkur Íslands sem deild í Komintern - Alþjóðasambandi kommúnista í Moskvu - og skriflega skuldbundinn til að lúta fyrirmælum þeirrar stofnunar þar sem Josef Stalin var einvaldur frá 1928.
Sama dag, 29. nóvember, sögðu kommúnistar sig úr Alþýðuflokknum og voru reknir þaðan á aðalfundi eftir að slegist hafði verið. Skrílslæti þessi tíunduð í frásögn Guðjóns Friðrikssonar, bls. 197 í ,,Úr fjötrum".
;/;Tikki - tikki - ta, tikki - tikki - ta, augu Stalíns vaka yfir mér ;/;
Úr stefnuskrá: ,,Ísland verður aldrei raunverulega sjálfstætt fyrr en verkamenn og bændur hafa tekið ríkisvaldið í sínar hendur og gengið í bandalag við ráðstjórnarlýðveldi annarra landa".
,,Líklegt er að stór hluti þess fólks sem léði máls á stuðnigi við bolsévisma hafi alls ekki gert sér grein fyrir hinum raunverulegu markmiðum Bolsévikaflokksins: að taka stóran hluta eigin þjóðar af lífi til að tryggja alræði heimsflokks kommúnista". (af bls. 22 í Moskvulínan, bók Arnórs Hannibalssonar). Hvers vegna Arnór mæli svo má sjá hér við 1919.
1926 gekk ASÍ (Alþýðuflokkurinn) í 2. Alþjóðasamband verkamanna í Sviss, sem stjórnað var af sósíaldemokrötum. 2837 því fylgjandi, 640 á móti. Fyrirrennari þessa sambands var fordæmdur fyrir þjóðernishyggju. Aðilar þess höfðu stutt hver sína ríkisstjórn í nýlokinni heimsstyrjöld, þvert á yfirlýsta alþjóðahyggju. En nú skyldi tekin rétt lína að nýju.
Hendrik Ottósson hafði flutt 6 klst. langa ræðu á móti aðildinn. Illskiljanlegt er að þá þegar tengir Hendrik sósíalisma við ,,sjálfstæðisbaráttu" Íslands með því að sósíalistar stjórni í Danmörk og því skyldu Íslendingar tengjast 3. Alþjóðasambandi verkamanna, Kommunistische Internationale, stytt: Komintern, í Moskvu, en þar hafði hann verið heimagangur frá 1920. Sbr. Einar Olgeirsson hér næst. (Hendrik Ottósson, Vegamót og vopnagnýr, bls. 106). Sjá 1919. og 1924.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Þór Whitehead, Sovét-Ísland, bls. 74: ,,...hugmynd Einars Olgeirssonar að taka þjóðernisstefnuna ...í þjónustu sósíalismans. Ísland hefði ekki öðlast raunverulegt fullveldi 1918 heldur væri ánauðug nýlenda erlends auðvalds ...Því ætti Kommúnistaflokkurinn að taka forystu í nýrri sjálfstæðisbaráttu".
Hugmyndin er frá Stalín 1934, þegar Komintern skipaði að nýta rikjandi þjóðernisstefnu í þágu kommúnisma þar sem það hentaði. Stofnskrá Komintern 1919 hafði talað um hreinsun frá ,,sosíal-patríotisma". Og í 6. grein samþykktar 2. þings Komintern 1921 stóð: ,,Kommúnistar skulu afhjúpa friðarhyggju og þjóðrækni sósíaldemokrata". (Arnór Hannibalsson, Moskvulínan bls. 31).
30. desember, í óþökk jafnaðarmanna, boðaði Flokkurinn Dagsbrúnarverkamenn til kröfugöngu að Gúttó undir rauðum fána, og hleyptu upp fundi bæjarstjórnar Reykjavíkur áður en tillaga Alþýðuflokksins um atvinnubótavinnu komst til umræðu. Urðu hörð átök og slys á mönnum. Þetta hefur verið kallað Gúttóslagurinn fyrri (fyrsti).
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Halldór Stefánsson: Refskák stjórnmálaflokkanna útg. 1943, bls. 16: ,,Á flokksþingi sósíalista ...klofnaði flokkur þeirra. Hin hægfara deild hélt nafni flokksins (Alþýðufl.), en órólega deildin kenndi sig við kommúnista ...ýmis fyrirbrigði lýstu því hversu sambúð stjórnarflokkanna var farin að kólna, hópgöngur, áflog og ryskingar á götum Reykjavíkur. Byltingarsöngvar úti fyrir bústað forsætisráðherra”. Níðvísur, kröfufundir, uppþot á Bæjarstjórnarfundi.
GRUND
Elliheimili við Hringbraut, Rvk. nefnt Grund sem fyrirrennari þess frá 1922 við Kaplaskjólsveg og var sjálfseignarstofnun, aðalhvatamaður sr. Sigurbjörn Ástvaldur Gíslason.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
1921, hafði verið komið á fót elliheimili á Ísafirði.
Vefurmyndasafn.isafjordur.is (opnast í nýjum flipa)
KÓNGUR og drottning á Alþingishátíðinni.
Kristján X. kóngur og Alexandrina drottning sóttu Alþingishátíðina, sem haldin var á Þingvöllum og í Reykjavík að hluta. Að efna til hátíðar af þessu tilefni segir Jónas hafa verið hugmynd þeirra Tryggva. (Aldir og augnablik II, 98).
Ragnheiður Kristjánsdóttir segir í ,,Nýtt fólk", bls. 222, að ,,Alþingishátíðin hafi verið sjálfstyrkingarhátíð ... og fólst annars vegar í að sækjast eftir alþjóðlegri viðurkenningu ...Og útlendu gestirnir brugðust við eins og til var ætlast, dáðust að hátíðarhöldunum, þjóðinni og stjórnmálaarfleifð hennar".
En kommúnistar voru í andófi. Söfnuðu í tilefni afmælisins 2.077,60 krónum fyrir dráttarvél sem þeir gáfu samyrkjubúi í Rússlandi. Prentuðu slagorð: ,,Niður með alþingishátíðina! Lifi samtök hins vinnandi lýðs! Lifi stéttabaráttan! Lifi ráðstjórnarsamband allra landa!".
Brynjólfur Bjarnason skrifaði í Rödd verkalýðsins: ,,Á alþingishátíðinni gefur íslensk alþýða rússneskri alþýðu dráttarvél ...í sama mund og íslenskir auðmenn, stórbændur og sósíaldemókratar minnast 1000 ára kúgunar á Íslandi".
Öreigar allra landa sameinist!
Hér blessar Don Camillo bilaða sovéska dráttarvél, sbr. merkið CCCP: MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Sagan um prestinn Don Camillo og kommann Peppone er eftir Giovannino Guareschi.
Kommúnismi og þjóðernisstefna voru andstæður. Þjóðremba var ekki á dagskrá kommúnista fyrr en 1934/5 og þá eftir fyrirskipun Stalíns sem liður í baráttunni við sósíaldemókrata, sem hér gagnaðist í ,,sjálfstæðisbaráttunni nýju" við dönsku kratana. (Nýtt fólk, bls. 222 og víðar).
Þórbergur Þórðarson, bls. 131 í ,,Pistilinn skrifaði" frá 1925, útg. 1933: ,,Þar (í Voss í Noregi) var og fyrir Skagfirðingur (sem) vildi að við þúuðumst öll, úr því að við værum Íslendingar. Þetta gerði ég með hangandi hendi, því að innra með mér fann ég ekkert Íslendingseðli og enga minnstu rækt til Íslands né Íslendinga. Allur heimur guðs (!) er ættland mitt. ...Ég talaði eins og innblásin alheimspersóna".
Ragnheiður Kristjánsdóttir, Nýtt fólk, bls. 244 segir Alþýðuflokksmenn tvístígandi í afstöðu sinni til hátíðarinnar.
Jónas sagði þá Tryggva hafa átt hugmyndina að Alþingishátíðinni, sem hefur þá verið í stjórnartíð íhaldsins af því að Alþingishátíðarnefndin var skipuð 1926 undir forsæti íhaldsþingmanns, Jóhannesar Jóhannessonar.
Halldóri Laxness var ekki boðið í ræðustólinn. Hann líkti opinberum ræðum og kvæðum hátíðarskáldanna við hávært gagg í hænum. (Halldór Guðmundsson, Halldór Laxness, bls. 195 og 278).
Í þingkosningum 1936 kynntu kommúnistar sig svo sem þjóðernissinna og náðu þremur mönnum á þing - höfðu engan áður. Stalín snjall.
Um einvaldshyllingu konungs í Kópavogi: sjá 1662.
Um aftökur á Þingvöllum er fjallað m.a. 1573, 1704, og sjá: Vefur (opnast í nýjum flipa)
Vefursoguslodir.hi.is (opnast í nýjum flipa)
Um ósætti lækna við ráðherraskipun Sigvalda Kaldalóns í stöðu héraðslæknis í Grindavík er fjallað annars staðar þetta sama ár.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)