Steina þótti stemning þyngja
Lag Se den lille kattekilling
Steina þótti stemning þyngjaí strætó sat ei kyrr:,,Hvernig er það, á ekki að syngja"?Austfirðingur spyr.
Heimildir og samhengi
Hlutafélagið Strætisvagnar Reykjavíkur, SVR, byrjar akstur á einni leið: Lækjartorg, Kleppur (Elliðaárvogur), - Lækjartorg, Framnesvegur.
Fargjald 10 til 25 aurar eftir vegalengd, börn 5 aurar. Reykjavíkurbær gerðist einn eigandi SVR 1944.
Þarna fengu leigubílar samkeppni sem börnin fögnuðu með því að syngja hástöfum:
:/:Allir með strætó,
allir með strætó,
enginn með Steindóri:/:
því hann er svo mikill svindlari.
Á 40 ára afmæi SVR birtir Morgunblaðið m.a. þessa ,,vísu", HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)
en þó aðeins fyrri partinn. E.t.v. vegna þess að Bifreiðastöð Steindórs var þá enn starfandi.
HeimildSarpur (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Vopnfirðingurinn Þorsteinn skáld Valdimarsson (1918-1977), kom til tónlistar-og háskólanáms 1939 í Reykjavík.
Þá hafa strætisvagnaleiðir verið orðnar fleiri og náð a.m.k. bæði til Skerjafjarðar í vestri og Sogamýrar í autri enda hernmt að í Sogamýrarvagninum hafi Þorsteinn staðið upp og spurt: ,,Hvernig er það, á ekkert að syngja?
Hafi þetta ekki verið snemma morguns þarf ekki að efast um að Þorsteinn hafi náð upp glöðum rútusöng þótt varla hafi jafnast á við þennan: MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)