Jakobína Jensdóttir Stær
Lag Sunnudagur Drottins er
Jakobína Jensdóttir Stærjörmunljósa Siglfirðinga.Hver í slíkrar fótspor fer?Frækna karla af réð stingadygði' ei hestur fann- í fergifór á skíðum, villtist hvergi.
Heimildir og samhengi
Forsíðufrétt Neistans á Siglufirði 6. júní er að látist hefði daginn áður ljósmóðir Siglfirðinga til 38 ára, Jakobína Jensdóttir Stær, f. 1866.
Guðrún Björnsdóttir frá Kornsá ritar þátt um hana í Íslenskar kvenhetjur, Bókfellsútgáfan 1948.
Þar sést að hún hefur verið ljósmóðir í Fnjóskadal frá 18 ára aldri og hafði þá lokið því námi á Akureyri, en 23ja ára orðin ljósmóðir á Siglufirði og Héðinsfirði með tilheyrandi skíða- og gönguferðum í illviðrum.
Kom þá í góðar þarfir það afburðaþrek sem henni var gefið.
Móðir hennar, Rósa Sveinsdóttir – náskyld Vatnsenda-Rósu skáldi – var kona Jens Stær, sjá 1821, 1878 og eftirfarandi:
Vefurskidasaga.fjallabyggd.is (opnast í nýjum flipa)
,,Skíði voru eina færa leiðin til að ferðast um þessar slóðir að vetrarlagi og afreksferðir pósta, lækna og ljósmæðra ófáar. Jakobína Svanfríður Jensdóttir Stær var vel þekkt ljósmóðir á Siglufirði. Elstu skíðin sem varðveitt eru á Siglufirði voru í hennar eigu og eru brennimerkt með skammstöfuninni ,,ljósm.“. Skíðin eru frá 19. öld og þau notaði Jakobína til að sinna umdæmi sínu sem var Siglufjörður, Siglunes, Héðinsfjörður og Úlfsdalir".
Í bókinni Frá Hvanndölum til Úlfsdala, segir Sigurjón Sæmundsson, bls. 477-478, að Jakobína hafi þótt heppin í starfi, ákveðin og dugleg.
HljóðritÍsmús (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Aldrei enduðu skíðaferði Jakobínu svona: MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)