Fast við keipinn Selur sat
Lag Dvel ég í draumahöll
Fast við keipinn Selur satsjaldan þvílíkt skeð.Höfuð Tryggva heimta' á fatog hafa kónginn meðpólitísku tökin hörðtaflið kreppan magnarlaga- standa verðir vörðum Valgerði og Agnar,
Heimildir og samhengi
Fjármálakreppa á heimsvísu og ofbeldisfull staða þjóðmála í evrópu á millistríðsárunum, sem íslenskir (námsmenn) fluttu með sér til landsins, er rót þeirra hamrömmu (pólitísku) átaka sem hér verður fjallað um næstu árin.
Forsætisráðherra, Tryggvi Þórhallsson (1889-1935), las konungsbréf um þinglausnir 14. apríl, þegar vantraust var fyrirsjáanlegt. Var þá setið um ráðherrabústaðinn dægrin löng með niðurhrópum gegn kóngi og Tryggva svo hafa mátti lögregluvörð á staðnum og börn Tryggva flutt úr Reykjavík. Alþýðuflokkurinn ritaði Sjálfstæðisflokki um að halda áfram þingstörfum og stofna lýðveldi, en eitt atkvæði vantaði flokkana til að ná því fram, þ.e., atkvæði utanflokkaþingmannsins Gunnars frá Selalæk Sigurðssonar, sem fékk uppnefnið ,,selur” 1927, er ókunnur höfundur (Tómas?) orti fleyga oddhendu þegar Gunnar veitti stjórn Framsóknar hlutleysi það ár:
Gunnar selur, gjörðu svo vel,
gengur með deleríum.
Í svartaéli suður á Mel
situr í keleríum.
Tilvísun: Jónas Þorbergsson, Átök við aldahvörf, bls. 204 til 227. Um Gunnar Sigurðsson: bls. 221 - 223.
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
Vefursogufelag.is (opnast í nýjum flipa)
FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)