Árið 1932

t.d.

6 vísur frá árinu 1932
  1. 1932Lag: Þótt ég sökkvi í saltan mar - Bj.Þ. 881

    Deila er upp í Gúttó gaus

    gat eigi nýtt sér síma
    en Héðinn ei stóð aðgerðalaus
    - Álfheiður þeirra tíma.
    1 erindi til viðbótar

    GÚTTÓSLAGURINN síðari. Í Sovét Íslandi, bls. 157 telur Þór Whitehed Gúttóslagina a.m.k. þrjá, en ,,Félag ungra kommúnista hélt útbreiðslufund í janúar 1932 og gengu þaðan kröfugöngu til bæjarstjórnarfundar sem fékkst…

    Hlusta
    Héðinn Valdimarsson, verkalýðsleiðtogi, forstjóri BPHéðinn Valdimarsson "Allsleysi er draumur allsnægtafólks"+4
  2. 1932Lag: Reið ég Grána yfir ána

    Feðgar jurtum sá í sverði

    Sigurður og Ingimar
    Jónas Kristjáns Hveragerði
    kýs til Heilsustofnunar.

    Ingimar Sigurðsson (1910-1990), lagði drög að garðyrkjustöðinni Fagrahvammi í Hveragerði 1929. Þá var ekkert hús þar risið. Að loknu garðyrkjunámi í Þýskalandi 1932 hófst hann handa við að koma stöðinni upp og naut…

    Hlusta
    Hús og bíll Ingimars Sigurðssonar í Fagrahvammi, Hveragerði.Ingimar Sigurðsson, garðyrkjubóndi Fagrahvammi, Hvg.Sigurður Sigurðsson búnaðarmálastjóri+3
  3. 1932Lag: Vater unser im Himmelreich

    Þótt hljómi International

    nú um Bolungarvík og dal
    heims- nær kreppan harðna
    - heitt í kolum þarna -
    höndum taka Hannibal
    Högnamenn og Bjarna.

    BOLUNGARVÍKURDEILAN: Salka Valka eftir Halldór Laxness kom út í tveimur hlutum árin 1931 og 1932. Þar, í þorpinu Óseyri við Axlarfjörð, hét athafnamaðurinn Bogesen. Í Heimsljósi, sama höfundar eru svipuð átök. Sannir…

    Hlusta
    BolungarvíkHannibal ValdimarssonÍsafjörður+2
  4. 1932

    Þá verkalýðurinn völdum nær

    vægir hann ekki ríkum
    þeim treður um tær
    klippir á klær
    og klæðir sig þeirra flíkum.

    Í málgagni Kommúnistaflokksins, Verkalýðsblaðinu 2. júní 1932, ritstjóri og ábyrgðarmaður Brynjólfur Bjarnason, er lýst væntanlegri valdatöku kommúnista í grein sem nefndist ,,Hvað er kommúnisminn?". Úrdráttur:…

  5. 1932

    Vestrinu hugsaði horn- til grýtis

    Halldór og mælti ei of
    en sjöunda kjallara Sovétvítis
    söng lengi prís og lof.

    Sigurður Hróarsson, ,,Eina jörð veit ég eystra", bls. 71: ,,Eftir að hafa lesið alla lýsingu Halldórs í Skáldatíma á viðbrögðum hans við allsleysi, fátækt og öðrum hörmungum Sovétríkjanna þetta haust (1932) virðist…

  6. 1932Lag: Fljúga hvítu fiðrildin

    Við erlent kaupslag orðin frí

    afleiðingin slík
    að verslun öll fer eftir því
    hvar ertu' í pólitík.

    13. kafli Samvinnu á Suðurlandi, eftir Guðjón Friðriksson, sem er í II. bindi, er um sögu (samvinnu)verslunar í Vestur-Skaftafellssýslu, en Kaupfélag kennt við sýsluna var stofnað 1926. Fyrir var Halldórsbúð (Jónssonar)…

    Hlusta
    Alþingismaður, Lárus Helgason. Form. Kaupfélags Skaftfellinga 1914–1941Ragnar Jónsson. Framkvæmdastjóri Verslunarfélags Vestur-Skaftfellinga 1951–1961. Alþingismaður, Ísleifur Högnason, kaupfélagstjóri Kf. verkamanna, Vme., ,,Bolsabúð".+4