Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1932
1932
1932

Feðgar jurtum sá í sverði

Hljóðbrot0:00

Lag Reið ég Grána yfir ána

FFeðgar jurtum sá í sverðiSigurður og IngimarJónas Kristjáns Hveragerðikýs til Heilsustofnunar.

Glúmur Gylfason · 1932

Heimildir og samhengi

Ingimar Sigurðsson (1910-1990), lagði drög að garðyrkjustöðinni Fagrahvammi í Hveragerði 1929.
Þá var ekkert hús þar risið.
Að loknu garðyrkjunámi í Þýskalandi 1932 hófst hann handa við að koma stöðinni upp og naut föður síns, eldhugans Sigurðar Sigurðssonar (1871-1940), f.v. búnaðarmálastjóra og skólastjóra Bændaskólans á Hólum og sem verið hafði frumkvöðull þess að stofnað var Skógræktarfélag Íslands 1930.
(Jónas Jónsson, Hriflu, í Aldir og augnablik II, 136:
,,Sigurður var einhver mesti frumkvöðull í jarðrækt sem lifað hefur í þessu landi").
Sjá ævisögu Sigurðar, ritaða af Jónasi Þorbergssyni, útvarpsstjóra.
Viðtal Ísmúsar við Ingimar Sigurðsson:
HljóðritÍsmús (opnast í nýjum flipa)

Jónas Kristjánsson (1870-1960), læknir og alþingismaður, var á sinni tíð fremstur í að kenna þjóðinni að meta jurtafæðu - þurfti ódeigan til - og frumkvöðull að stofnun Náttúrulækningafélagsins og síðan Heilsustofnunar þess í Hveragerði 1955. Þar stendur brjóstmynd hans úr steini.
Æviágrip á alþingi.is HeimildAlþingi (opnast í nýjum flipa)

Sjá 1758.VefurGoogle (opnast í nýjum flipa) Hér túlkar Spaugstofan væntanlega eldra viðhorfið til grænmetis:VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)

En nú er HNLFÍ í miklum metum:
Vefurfraedsla.heilsustofnun.is (opnast í nýjum flipa)

Hveragerði: MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

HeimildFerlir (opnast í nýjum flipa)

Vefursouth.is (opnast í nýjum flipa)

VefurGuide to Iceland (opnast í nýjum flipa)

Vefuradventures.is (opnast í nýjum flipa)

FréttFréttablaðið (opnast í nýjum flipa)

Vefurfr-fr.facebook.com (opnast í nýjum flipa)

VefurFacebook (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1932

  • Deila er upp í Gúttó gaus
  • Þótt hljómi International
  • Þá verkalýðurinn völdum nær
  • Vestrinu hugsaði horn- til grýtis
  • Við erlent kaupslag orðin frí
← 1932Deila er upp í Gúttó gaus1932 →Þótt hljómi International