Árið 1944

t.d.

7 vísur frá árinu 1944
  1. 1944Lag: Einn var að smíða ausutetur

    Undan þýski herinn hörfar

    og hraðar sinni för
    því allir vilja Helga Hjörvar
    heyra lesa Bör.

    Jónas Ragnarsson, Dagar Íslands: ,,7. janúar hóf Helgi Hjörvar (1888-1965) lestur útvarpssögunnar Bör Börsson eftir Johan Falkberget ... lesturinn stóð fram í maí og vakti mikla athygli". Bændur kepptust við að ljúka…

    Hlusta
    Þjóðverjar (í beinni einfaldri röð) á undanhaldi í Noregi, landi BörsÞýskur flótti!Helgi Hjörvar t.v. heilsar Jóhannesi KjarvalMyndband
  2. 1944Lag: Einn herra ég best ætti

    Jónas frá formennsku felldur

    í Framsókn þetta ár
    menn kusu Hermann heldur
    og Hrifla er Eysteini sár
    með uppeldissyninum eldur
    þótt aldurinn sé hár
    og næstum kross á negldur
    nyrðra þeim reynist grár.

    Sr. Sigurjón Einarsson, Undir hamrastáli, bls. 110: ,,Það er apríldagur 1944. Finnbogi (b. Hóli, Bakkadal, Arnarfirði) er í heimsókn hjá okkur. Hann er nýkominn úr Reykjavík þar sem hann sat flokksþing…

    Hlusta
    Hermann JónassonEysteinn Jónsson í stjórn FramsóknarflokksinsJónas Jónsson frá Hriflu, fráfarandi form. Framsóknarflokksins+3
  3. 1944Lag: Rósin

    Vestu'r í Dölum er Denni að veiðum

    dregur laxa sí og æ
    bilar þá á bæjarleiðum
    bíllinn Gugga, Ár- við bæ.
    1 erindi til viðbótar

    Á mjólkurbílnum X-47 dró Jón I. Guðmundsson, síðar yfirlögregluþjónn, bilaðan mjólkurbíl, X-14, frá Árbæ, austan Elliðaáa til Ölfusár - eins og Selfoss var þá kallaður. Þegar bílarnir óku út á Ölfusárbrú um kl. 02 þann…

    Hlusta
    Gamla Ölfusárbrúin+6
  4. 1944Lag: Allt fram streymir endalaust

    Enn er farið með sem morð

    mun og lengi vani
    að best sé að hafa engin orð
    um hversu kvöddum Dani.
    1 erindi til viðbótar

    https://www.mbl.is/frettir/innlent/2019/08/20/thegar_islendingar_girntust_graenland/ Lögskilnaðarmenn tókust á við hraðskilnaðarmenn í lýðveldiskosningunni. Lögskilnaðarmenn voru einkum þeir sem dvalist eða menntast…

  5. 1944

    Kommar fara kollhnís enn

    kónginn danska átelja:
    ,,Bandaríkja- mega menn
    á Miðnesheiði dvelja".

    Óskar Guðmundsson: ,,Alþýðubandalagið, átakasaga, bls. 33: Árið 1938 lýsti Einar Olgeirsson vilja sínum að auka samstarf við Bandaríkin, einnig í öryggismálum. Þegar fyrst kom til álita að Bandaríkjamenn leystu breska…

  6. 1944Lag: Allt fram streymir endalaust

    Í bjargi er héngum á hvannarrót

    til hjálpar urðu Danir
    óæðri fá nú í endann fót
    einatt slíku vanir.
    1 erindi til viðbótar

    https://vefir.mms.is/komdu/fjollin/sogur_fjoll/ur_fostbr_sogu.html Einar Laxness, Íslands saga III, 63: stjórnarskrá: ,,17. júní 1944 voru þær einar breytingar gerðar, sem nauðsynlegar voru þegar sambandslög féllu úr…

  7. 1944Lag: Allt fram streymir endalaust

    Í bjargi er héngum á hvannarrót

    til hjálpar urðu Danir
    óæðri fá nú í endann fót
    einatt slíku vanir.
    1 erindi til viðbótar

    https://vefir.mms.is/komdu/fjollin/sogur_fjoll/ur_fostbr_sogu.html Einar Laxness, Íslands saga III, 63: stjórnarskrá: ,,17. júní 1944 voru þær einar breytingar gerðar, sem nauðsynlegar voru þegar sambandslög féllu úr…