Árið 1943

t.d.

4 vísur frá árinu 1943
  1. 1943Lag: Tíu litlir negrastrákar

    Ísland hefur illa ræmt

    það oss ei látum bjóða
    á vatn og brauð þann dóna dæmt
    sem dirfðist nefna gróða.
    1 erindi til viðbótar

    Sakadómur dæmir dönskum manni, Andreas Gottfredsen, 6 mánaða fangelsi og missi borgaralegra réttinda fyrir að senda breska blaðinu Fishing News grein, er segir eftir íslenskum skipstjóra að þótt fiskverð til…

    Hlusta
    Hegningarhúsið, Skólavörðustíg, Rvk.+3
  2. 1943Lag: Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903

    Að Árhrauni bæði og Brúnastöðum

    barna gæta ei þarf
    á botni Hvítár víst ei vöðum
    vatnið sporlaust hvarf.
    1 erindi til viðbótar

    2. Mósebók 21-22: ,,Þá rétti Móse hönd sína út yfir hafið ...Þá klofnaði hafið svo að Ísraelsmenn gátu gengið á þurru í gegnum það, en vatnið stóð eins og veggur þeim til hægri og vinstri handar". Sama gerðist við…

  3. 1943

    Innan í höfði Hitlers sat

    heili er illu sáði
    stöðvast nú sókn hans í Stalíngrad
    er stríðs fyr'ir lokum spáði.

    Orrustan um Stalingrad. Úrdráttur úr slóðinni: https://www.wikiwand.com/is/Orrustan_um_Stal%C3%ADngrad ,,17. júlí 1942 er talað um að orrustan um Stalíngrad hafi hafist en þann 23. ágúst komust hersveitir sjötta hers…

  4. 1943

    Þormóðsslysið slóða dró

    slær á dapra strengi
    vestra þar við beygður bjó
    Bíldudalur lengi.

    20. febrúar ,,... varð eitthvert mannskæðasta slys Íslandssögunnar þegar 31 maður fórst við Garðskaga í fárviðri. Samúð þjóðarinnar beindist að sjávarþorpinu Bíldudal sem varð fyrir mestum mannskaðanum. Níu konur og…