Að Árhrauni bæði og Brúnastöðum
Lag Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903
Að Árhrauni bæði og Brúnastöðumbarna gæta ei þarfá botni Hvítár víst ei vöðumvatnið sporlaust hvarf.
Hestfjalli undir ormur lá- má ætla að þyrfti ropa -því Hvítá-eystri enginn sáeftir ´ann fékk sér sopa.
Heimildir og samhengi
2. Mósebók 21-22: ,,Þá rétti Móse hönd sína út yfir hafið ...Þá klofnaði hafið svo að Ísraelsmenn gátu gengið á þurru í gegnum það, en vatnið stóð eins og veggur þeim til hægri og vinstri handar".
Sama gerðist við Brúnastaði í Flóa 1943, þ.e., Hvítá þornaði uppi.
Heimildarmaður: Guðni Ágústsson frá Brúnastöðum þann 23. apríl 2021.
Vitneskjuna hafði hann frá foreldrum sínum þar á bæ.
Einnig að gömul kona í sveitinni, sem þekkti tvö eldri tilvik hliðstæð frá 1594 og 1702, - og sem þar er getið á þessari vefsíðu - kunni að rekja fyrirbrigðið til skrímslis sem svaf undir Hestsfjalli, en vaknaði aðra eða þriðju hverja öld til þess að fá sér að drekka.
Að sögn Gísla biskups Oddssonar varð skrímslisins og vart í Hvítá við ferjustaðinn til Skálholts árið 1600. Sjá þar.
Skarðsárannáll I, 177: ,,Þann 19. Novembris (1594) þverraði Hvítá í tveim stöðum, hjá Árhrauni á Skeiðum og í Flóa austan til í landinu hjá Brúnastöðum, nær þvert yfir um. Þar var gengið þurrum fótum í einn hólma sem áður var ófært og teknar þaðan hríslur til merkis".
Fitjaannáll 1702:
,,Þornaði Hvítá hjá Árhrauni á Skeiðum nær í 2 daga hvað og skeði 1594”.
Vefurfr.wikiloc.com (opnast í nýjum flipa)
Vefurveidistadir.is (opnast í nýjum flipa)