Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1943
1943
1943

Ísland hefur illa ræmt

Hljóðbrot0:00

Lag Tíu litlir negrastrákar

ÍÍsland hefur illa ræmtþað oss ei látum bjóðaá vatn og brauð þann dóna dæmtsem dirfðist nefna gróða.

Víst með lögum land skal byggjaljúga skyldi ei nokkursamt má stundum satt kyrrt liggjasérstaklega um okkur.

Glúmur Gylfason · 1943

Heimildir og samhengi

Sakadómur dæmir dönskum manni, Andreas Gottfredsen, 6 mánaða fangelsi og missi borgaralegra réttinda fyrir að senda breska blaðinu Fishing News grein, er segir eftir íslenskum skipstjóra að þótt fiskverð til ófriðarþjóðanna sé 60-70% of hátt, rétt eins og kaupgjald fyrir vinnu fyrir hernámsliðið, þá þætti mönnum rétt að ganga enn harðar fram í þeim viðskiptum.
Yfirvöld töldu að andlega heilbrigður maður léti ekki hafa slíkt eftir sér og fluttu Andreas á Klepp til gæslu og rannsóknar í 4 mánuði. Hann reyndist þó sakhæfur og var dæmdur fyrir landráð.
Þegar úrslit stríðsins sýndust ráðin með fyrirsjáanlegri verðlækkun á fiski, var hann látinn laus og rekinn úr landi.
Slóðin hér að neðan sýnir bls. 2 úr Alþýðublaðinu sem segir frá þessu neðst í 3ja dálki.
HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)

Sjá 1698: drengur húðstrýktur og rekinn úr landi fyrir að segja sannleikann um prófast.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

(smella á): HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)

Höfundur Sjálfstæðs fólks hefur eftir Bjarti í Sumarhúsum:
,,Ég segi ekki annað en það: ,,Bara að þeir héldu því áfram sem lengst (fyrra stríði), svo kjötið og ullin haldi áfram að stíga””.

Dómurinn átti sér enn annað og nýrra fordæmi 1941:
Mbl. 3. febrúar 1999: ,,Valdimar Jóhannsson bókaútgefandi skrifaði hvassyrta grein um fisksölusamning, sem íslensk stjórnvöld gerðu við breskan útgerðarmann, var sakaður um landráð og dæmdur í 30 daga fangelsi, og jólin 1941 sat hann í hegningarhúsinu við Skólavörðustíg".
(smella á): Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Jakob F. Ásgeirsson: Þjóð í hafti, bls. 156 og 167, telur ,,gjaldeyrisforðann í stríðslok 1945 orðinn 580 milljónir, þ.e., jafngildi tveggja ára innflutnings, en uppurinn 1947”.
1948, kom 29,8 milljóna dollara gjafafé frá USA, Marshallhjálpin.

Heimildir, tilvísanir: Öldin okkar; Virkið í norðri II, bls. 193 og III, bls. 55;
Theódór Friðriksson: Í verum II, bls. 459.

Fangakórinn (smella á): MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Guðmundur Magnússon, Thorsararnir, bls. 271, úrdráttur: Thor Thors, sendiherra í New York, skrifar heim að peningaflóðið verði okkar mesta bölvun, græðgin vaxi í hverjum manni og erfitt verði að ná henni niður aftur. Orð sé haft á því í USA að Íslendingar stórgræði á stríðinu og hugsi um það eitt að raka saman fé á sama tíma og aðrar þjóðir færi fórnir í baráttu fyrir frelsinu. Peningarnir séu miklu minna virði en samúð þeirra sem eiga um sárt að binda að styrjöldinni lokinni.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

AlfræðiVísindavefurinn (opnast í nýjum flipa)

Vefurdailymotion.com (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1943

  • Að Árhrauni bæði og Brúnastöðum
  • Innan í höfði Hitlers sat
  • Þormóðsslysið slóða dró
← 1942Úrkynjun nýlista Hrifla sig hélt1943 →Að Árhrauni bæði og Brúnastöðum