Úrkynjun nýlista Hrifla sig hélt
Lag Á kaupmanninn, rétt við búðarborðið
Úrkynjun nýlista Hrifla sig héltá háttvirtu Alþingi sannavið klessur og rímleysur fékk sig ei felltog fegnastur skyldi slíkt banna.
Heimildir og samhengi
Sllóðin MyndbandVimeo (opnast í nýjum flipa) (smella þarf á myndina sem birtist) fjallar ítarlega um Háðungarsýninguna sem Jónas Jónsson frá Hriflu setti upp í Alþingishúsinu á verkum ungra listamanna. Þeir sóttu hugmyndir til útlendinga sem þótti ekki gott og allra síst þegar nú skyldi stofna lýðveldi íslenskrar þjóðar innan skamms.
Jónas brosti nú til hægri í póitík, en þeir Íslenskir listamenn sem mættust á jaðrinum - lengst til vinstri eða yst til hægri - fylgdu sameiginlegri línu Stalíns og Hitlers í listum sem öðru, og var hún hin sama og Jónasar nema hvað á meginlandinu hættu menn lífi sínu með frumlegheitum, sbr. Schostakovich og Schönberg.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Mynd af Halldóri Vilhjálmssyni, skólastjóra Bændaskólans á Hvanneyri, sem Freymóður Jóhannsson málaði að samkvæmt ósk Jónasar frá Hriflu: Sjá 1896 skyldi (opnast í nýjum flipa)og 1905.0.0.7.113 (opnast í nýjum flipa)
HeimildSarpur (opnast í nýjum flipa)
Af bókum Jóns Óskars, skálds, sýnist Kristinn E. Andrésson, sem stjórnaði bókaútgáfunni Mál og menning, vera á báti með þeim Jónasi, Adolf og Jósef í listrænum efnum, sjá 1934, 1937, 1938 og 1945,(1939).
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
Sjá og1947, Septembersýninguna, sem og 1939 um listasmekk Hitlers.
Þýska háðungarlistsýningu má sjá á eftirfarandi slóð:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Þó að Halldór Laxness breytti strax stefnu gagnvart Sovétríkjunun eftir innrás þeirra í Ungverjaland 4. nóvember 1956, þá vakti uppgjör hans við Sovétkommúnismann í Skáldatíma mikla athygli víða um heim, en bókin kom út 1963, sjö árum eftir að Krútsjov afhjúpaði Stalín.
Brekkukotsannál ritar HKL 1955 til 1956 og þar hefði Jósef kunnað vel við Björn, - bls. 48: ,,Margskonar tal sem var í lensku fyrir utan krosshliðið í Brekkukoti, fékk á okkur líkt og geðbilun ...kvæði eftir nútímaskáld ...voru ...þannig í orðalagi, að okkur fór kalt vatns milli skinns og hörunds að heyra þau og afi minn settist á lúkurnar ...og hreif um sig eins og hann væri kominn með lús. ...Yfirleitt verkaði nútímaskáldskapur á okkur eins og verið væri að klóra striga".
Jónas Jónsson er talinn birtast í Pétri þríhross í Heimsljósi Halldórs Laxness sem foringi Sannra Íslendinga sem voru andstæðingar hinna ættjarðarlausu í Sviðinsvík undir Óþveginsenni.
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
Pétur þríhross: ,,Ólafur Kárason, þú sem kallar þig skáld, ég er kominn hingað til að segja þér að þú ert ekki framar neitt skáld. Þú ert klámskáld, guðlastari og sorakjaftur sem eitrar hugarfar æskulýðsins. Of leingi er ég búinn að þola edjót og rottu eins og þig. Ég hef fyrirgefið þér þó þú hafir sett blett á Sviðinsvík með því að skrifa sögur af fólki sem aldrei hefur þekst hér á eigninni [...] og aldrei þreyst á að gefa þér tækifæri til að verða gott skáld. En öll mín viðleitni til að gera þig að góðu skáldi hefur orðið árángurslaus. Nú er mitt lánglundargeð á þrotum kalli minn. Við vorum að vísu málkunnugir áður, en þegar þú gerist opinber útsendari þeirra ættjarðarlausu á móti innlendu stefnunni, á móti sjálfstæði þjóðarinnar, á móti mér, þá þekkjumst við ekki leingur, ég skal sýna ykkur það, ég skal kremja ykkur, ég skal mala ykkur, ég skal fletja ykkur" (1939, 184-185)".
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Í Ráðstefnuriti ii Íslenska söguþingsins 1997, frá bls. 351, ritar Auður Ólafsdóttir: ,, ... allar róttækar listnýjungar ... eiga það sameiginlegt að vaxa upp sem andóf gegn hefðinni".... myndlistarsaga okkar er stutt, eða ekki mikið lengri en öldin (20.). Þess vegna má segja að íslenska myndlist hafi framan af öldinni skort ,,hefð" til að gera uppreisn gegn".
Þegar íslenskir myndlistarmenn sem lært höfðu erlendis tóku á fimmta áratugnum að mála samkvæmt erlendum samtímahreyfingum annað en landslag , ,,þá brugðust margir forsvarsmenn þjóðlegrar listsöguskoðunar mjög illa við. ... Sá sem gekk harðast fram í því að halda á lofti eiginleikum íslenskrar (þjóðlegrar) myndlistar gegn erlendri (óþjóðlegri) list, var Jónas Jónsson frá Hriflu".