Greifafrúna hún María Markan
Lag Þýskt þjóðlag,
sbr. Maríu Sigurðar Þórarinssonar
Greifafrúna hún María Markaná Metropolitan söngklóna ætti úr henni barkann,ennis- holur og -göngóperuvegferðin þykir þröngþar er samkeppnin hörð og ströngMaría, María, María, Markaná Metropolitan söng
Heimildir og samhengi
Jónas Ragnarsson, Dagar Íslands:
,,7. janúar söng María Markan hlutverk greifafrúarinnar í Brúðkaupi Fígarós í Metropolitanóperunni í New York.
Hún varð þar með fyrsti Íslendingurinn sem kom fram í aðalhlutverki í þessu fræga óperuhúsi".
Arían Porgi amor úr fyrrnefndri óperu: MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Þór Whitehead, ,,Stríð fyrir ströndum", bls.110: ,,Í stríðinu (síðari heimsstyrjöld) vann Singer (flóttamaður af þýskum Gyðingaættum) það óheillaverk að spilla söngferli Maríu Markan í Metropolitanóperunni í New York. Laug hann því upp á þessa mikilhæfu söngkonu í blaði Gyðinga, að hún hefði verið í slagtogi við Paul Burkert (foringja í svartliði Himmlers, sem birti mynd af Maríu í Íslandsbók sinni) og þýska nasistaforkólfa. Því til sannindamerkis hafði hann ljósmynd sem átti að sýna Maríu lyfta skál í félagsskap nasista. Myndin reyndist vera af Heklu Jósefsson hótelstjóradóttur (Jóhannesar á Borg) er hún var að halda upp á afmæli sitt á Hótel Borg.