Á ríkisstjórn ei ræður bóla
Lag 1 lítill, 2 litlir, 3 litlir fingur
Á ríkisstjórn ei ræður bólaráðherranna- situr stólautanþingsstjórn, Coca-cola,kennd við Villa og Björn, son Óla.
Um Krísuvíkurveginn mjólkog vörum KÁ óken styttist óðum í að fólkóðfúst þambi kók.
Heimildir og samhengi
Tók þingið 2 ár að koma saman stjórn.
Ríkisstjóri, Sveini Björnsson skipaði utanþingsstjórn þegar þingmönnum hafði ekki tekist að mynda stjórn þá er rúmur mánuður var liðinn frá kosningum. Voru þó margir möguleikar í stöðunni: A: 7 þingsæti, B: 15 þingsæti, C: 10 þingsæti, D: 20 þingsæti.
Ákvörðun ríkisstjóra féll í grýtta jörð hjá mörgum þingmönnum og er talin hafa valdið því að Alþingi kaus hann ekki einróma til forseta 1944. Við lýðveldisstofnun var því ekki þingræðisstjórn á Íslandi.
Stefið er hið sama og við þingrofið 1931 sem jók ekki vinsældir Kristjáns X. eftir það sem á undan var gengið, 1921.
Það, að tvö ár liðu þar til tókst að koma saman ríkisstjórn, má sýna að ríkisstjóri hafi verið raunsær.
Utanþingsstjórninni ,,auðnaðist að halda verbólgunni í skefjum" (Þjóð í hafti, bls. 144).
Kosningarnar fóru fram eftir stjórnarskrárbreytingu sem Alþýðuflokkurinn lagði til, en varð þó minnsti flokkurinn við þá breytingu.
Sósíalistaflokkurinn hirti fylgi af Alþýðuflokknum þegar hann að skipun Stalíns, 1934, gerðist þjóðernissinnaður og svínvirkaði að halda því fram að Ísland hefði ekki orðið sjálfstætt ríki 1918 eins og forsætisráðherra, Framsóknarmaður, sagði þegar hann mótmælti hernámi Breta. Nei, Ísland væri nýlenda sem lyti valdi dansks konungs.
Sjálfstæðisflokknum stýrði ,,danskur Íslendingur", svo kommar voru í óskastöðu nú, þegar öfgaþjóðernishyggja réði ríkjum í álfunni og líka vegna þess að kratar fóru með völd í Danmörk og náin tengsl með þeim og Alþýðuflokknum sem beitti sér gegn sambandsslitum fram til síðustu stundar.
En Sameiningarflokkur alþýðu náði flugi með því að ,,róa undir kaupkröfum verkalýðsins og grafa þannig undan hefðbundnum íslenskum atvinnuvegum" (Jónas Jónsson) og spyrða sig ýmist saman við Jón Sigurðsson eða félaga Stalín, en vinsældir Stalíns voru nú í hæstu hæðum eftir að Rússar gengu til liðs við andstæðinga Hitlers í heimsstyrjöldinni.
Utanþingsstjórnin sat frá 16. desember 1942Wikiwand (opnast í nýjum flipa) til 21. okt. 1944Wikiwand (opnast í nýjum flipa). Hana skipuðu: dr. Björn Þórðarson (1879-1963), Vilhjálmur Þór (1899-1972), Björn Ólafsson (1895-1974), Einar Arnórsson (1880-1955). Síðar einnig Jóhann Sæmundsson (1905-1955).
Björn náði í umboð Coca-Cola og Vilhjálmur Þór, sat í stjórn þess fyrirtækis. Var ríkisstjórnin því nefnd Coca-Colastjórnin, og fyrir þeirra tilverknað nam sá drykkur land hér 1942.
Coca-Cola (smella á): MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Morgunblaðið hefur það eftir Birni Þórðarsyni áttræðum 1959, að forseti, áður ríkisstjóri, Sveinn Björnsson, hefði haustið 1944, þegar stjórnin fór frá, spurt (þótt hann vissi svarið) hvað vísitalan hefði hækkað mikið í tíð utanþingsstjórnarinnar og fengið það svar, að hún hefði staðið í stað. ,,Þá brosti Sveinn". En sumir þingmenn voru honum svo sárir fyrir að setja utanþingsstjórnina, að þeir kusu hann ekki til forseta.
En utanþingsstjórnin sá Reykjavík líka fyrir mjólk að drekka í snjóavetrum með því að láta halda áfram með Krýsuvíkurveginn.
Erlingur Brynjófsson, Baráttan við Fjallið, 84: ,,Jónas Jónsson, þá rh., lét hefja lagningu Krísuvíkurvegarins við mikla mótspyrnu ýmsra... varð Jónas að nota vinnukraft fanga á Litla-Hrauni til að hrinda af stað þessu verki.... (1928).
Í stjórnartíð Vilhjálms Þórs og Björns Ólafssonar komst aftur skriður á vegarlagninguna ...þeir fóru á hestum alla þessa leið til þess að skoða vegarstæðið”.
Vegurinn endanlega fullgerður 1948.
Kaupfélag Árnesinga, KÁ, annaðist alla flutninga fyrir Mjólkurbú Flóamanna (MBF) frá 1931 og til 1. janúar 1946 og ekki aðeins mjólk heldur hvers konar vörur, fastar og fljótandi, fyri sig, MBF, bændur og búalið. Frá 1946 gerði Mjólkurbúið sjálft út sinn bílaflota. Framsókn var þá utan stjórnar og samdi þá Ingólfur Jónsson, þingmaður og kaupfélagsstjóri Þórs á Hellu, lagafrumvarp til höfuðs fyrrnefndu samkrulli KÁ og MBF. Egill Thorarensen forstjóri KÁ hringdi þá í Ingólf - segir Ingólfur í ævisögu sinni - og bað hann að drekka með sér kaffi á Hótel Borg. Ingólfur dró þá frumvarpið til baka og fyrirkomulagi mjólkur- og vöruflutninga breytt, en áður höfðu mjólkurbílar KÁ ekki mátt flytja ,,svo mikið sem eldspýtnastokk" fyri aðra en KÁ.
Steindór Sigursteinsson (Denni) mjólkurbílstjóri, Ysjur, bls. 166: „Veturinn ...1948 til 1949 ...keyrðum við Krísuvíkurleið samfleytt í fjóra mánuði. ...En það var alltaf svo ...hvar svo sem farið var, um Hellisheiði, Þingvöll eða Krísuvík, að þá var alltaf geysilega mikil samvinna á milli manna". Denni kemur aftur við sögu 1944.
Bls. 173 í sömu bók segir frá því að mjólkurbílarnir voru þá óupphitaðir og tæki sér far með þeim Egill Thorarensen, stjórnarformaður MBF og kaupfélagsstjóri KÁ, fór hann ofan í sérsaumaðan gæruskinnspoka sem náði honum upp að höku. Rúðuþurrkur voru ófullkomnar svo að bílstjórinn varð að hafa höfuðið út um gluggann í snjókomu eða láta farþegann ganga á undan. (Ysjur II, 262).
Þegar mjólkurlaust var orðið í Reykjavík, fyrir og í stríðinu, voru flokkar sendir samtímis þaðan og frá Selfossi með handskóflur til að ryðja mjólkurbílum leið í snjó um Hellisheiði. Bæði þar, Mosfellsheiði og um Krísuvíkurleið segja mjólkurbílstjórar frá dæmum þess í Ysjum og austrænu að akstur milli Selfoss og Reykjavíkur tæki sólarhring eða meira aðra leið. T.d. Ysjur I, 305. Bílstjóri var þá oftast með höfuðið út um gluggann. (Ysjur II, 262).
Stundum var kallað á Guðmund Jónasson, ferðagarp, frá Reykjavík með trukk til aðstoðar og þegar ekki sá úr augum lá hann úti á aurhlífinni og leiðbeindi þaðan með bendingum. (Ysjur II, 157, 262).
Í Ysjum II, 261 greinir frá 36 tíma ferð, Selfoss - Rvk. Tveir bílar yfirgefnir og gengið til Kolviðarhóls með því að fylgja símalínu og hvílst við að setjast á kollinn á símastaurum.
Þegar saman fóru bylur og bilun gátu sólarhringarnir orðið margir. Jón I. Guðmundsson - síðar yfirlögregluþjónn - var rúma viku aðra leiðina 1945.
Þá játar Jón að hafa sofnað eitt sinn í vinnunni eftir að hafa vakað samfleytt í þrjá sólarhringa. (Ysjur II, 184, 186).
Um sumarmál 1951 tók ferðin fram og til baka 9 sólarhringa, en þá var gist á Kolviðarhóli. (Ysjur II, bls. 157).
Ekki voru allir mjólkurbílstjórar á einu máli um Krísuvíkurveginn. Jón Franklínsson segir í Ysjum II, bls. 173: „...að þeir sem færu að eyða fé í svona vitleysu ættu hvergi annars staðar að vera en í Steininum. ...Kaupfélagið átti einu sinni 6 brotna bíla á þeirri leið. ...Þeim peningum hefði betur verið varið til vegagerðar í ...veg yfir Hellisheiði".
Aðrar heimildir: Sigþór Sigurðsson: Vatna-Brandur.
Gunnar M. Magnúss: Virkið í norðri II, bls. 138, 169
Jón Óskar: Hernámsáraskáld, bls. 8 (Coca-Cola).
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)