Bændur vantar vinnumenn
Lag Yfir kaldan eyðisand
Bændur vantar vinnumennvilja fáar rakahemst og illa holdið ennhermenn skortir maka.
Heimildir og samhengi
Fólksflótti til þéttbýlis í vinnu fyrir herinn.
Sr. Sigurjón Einarsson, Undir hamrastáli, 182:
,,Fólk sigldi suður ...sem fram að þessu höfðu kannski verið hjú á sama bænum árum saman.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Kreppan og atvinnuleysið voru að baki. Bretavinnan ...sópaði fólkinu suður ...hinir mestu klaufar sveifluðu nú þar hamri og sög. Fyrr en varði hálftæmdist sveitin af ungu fólki. Það rétt skrapp heim um sláttinn ... frjálslegt og vel klætt, strákarnir með battersbyhatta, stelpurnar í fallegum kápum, sumar með nýjar tönnur og í nýjum hælaháum skóm.
Myndi.pinimg.com (opnast í nýjum flipa)
Vefurthieme.de (opnast í nýjum flipa)
Í Reykjavík mátti teljast slembilukka að fá leigt herbergi ...hjón að vestan slógu upp kojum í kjallaranum og á efri hæðinni í húsi sínu við Laugaveginn ...seldu líka þeim sem vildu kaffi og mat.
Hælbítar sögðu að þau rökuðu saman peningum ...orðrómurinn: ,,Það kemur víst fyrir að glatt sér á hjalla, ...einkum á kvöldin. Hermenn eru víst ekki óvelkomnir"".
FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
Vera Lynn - We'll Meet Again (smella á):
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Jón Guðnason: Umbylting við Patreksfjörð, 75: ,,Skæruhernaður verkalýðsins 1942 varð til þess að dreifa hluta af auðnum meðal alþýðunnar svo að hún hafði úr meiru að spila en nokkurn tíma áður".
Á bls. 87 lýsir Jón hvernig þéttbýlismyndun með sérhæfingu í störfum umhverfði sjálfsþurftabúskap í sveitum í einyrkjabúskap sem fleytti sér fram með því að selja afurðir.
Frá kútteratímanum höfðu sveitastúlkur kastað frá sér hrífunni, þvegið og þurrkað saltfisk á mölinni eða orðið vinnukonur á heimilum efnafólks þar, en nú þarfnast herinn líka þeirra vinnu svo sem við þvotta.
Í evrópu störfuðu um 35% kvenna frá fermingaraldri sem vinnukonur á heimilum í þéttbýli við lok 19. aldar.
(M.a. Der Spiegel Geschichte 4/2018, 110).
Í Einars sögu Guðfinnssonar, bls. 232, kemur fram að fyrrnefndir fólksflutningar úr sveitum til Reykjavíkur urðu ekki í sama mæli úr sjárvarþorpum. Erlendu togararnir hurfu af Íslandsmiðum strax í stríðsbyrjun. Óx þá afli Íslendinga stórum og ekki skorti kaupendur í Bretlandi og var það mest ísfiskur sem togarar og stórir bátar sigldu sjálfir með, en bresk fisktökuskip keyptu afla smærri báta. Þeir þorpsbúar sem ekki komu að útgerð unnu t.d. hjá bæjarfélögunum, sem með fullar hendur skattfjár gátu ráðist í framkvæmdir.
Í öðru bindi Minninga Agnars Kofoed-Hansen, Lögreglustjóri á stríðstímum, bls.189 -225, er kaflinn Siðferðismálin, sem fjallar um samskipti hermanna við íslenskar stúlkur.