Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1944
1944
1944

Í bjargi er héngum á hvannarrót

Lag Allt fram streymir endalaust

ÍÍ bjargi er héngum á hvannarróttil hjálpar urðu Daniróæðri fá nú í endann fóteinatt slíku vanir.

Þingmenn enn i strand þótt stefnistöðu saman ná:kvenmannslausir í kulda og regniKristján setja frá.

Glúmur Gylfason · 1944

Heimildir og samhengi

Vefurvefir.mms.is (opnast í nýjum flipa)

Einar Laxness, Íslands saga III, 63: stjórnarskrá:
,,17. júní 1944 voru þær einar breytingar gerðar, sem nauðsynlegar voru þegar sambandslög féllu úr gildi, ...að öðru leyti en því að forseti er nefndur í stað konungs, stóð stjórnarskráin 1874 að miklu leyti óbreytt".
Kjörsókn við kosningu um þá breytingu var 98% en 44% árið 1918 um hvort Ísland skyldi verða sjálfstætt ríki.

SAGA, LX-I 2022, bls. 107: ,, ,,, var ráðamönnum umhugað um að tryggja einhug og mikla kosningaþáttöku ... taka að nýju upp heimild til heimakosningar ... ekki aðeins hin gömlu og sjúku máttu kjósa ... heldu einnig þau sem ekki kæmust á kjörstað vegna heimilisanna".
Einhugurinn náð þó ekki til þingmanna sjálfra,m en þeir einir kusu forseta. Sveinn Björnsson hlaut 30 atkvæði af 52.

Saga Íslands XI, bls. 7: ,,Misskilningur sem víða gætir enn, að Ísland hafi fyrst orðið sjálfstætt ríki 17. júní 1944.”
Um það hver fyrstur olli þeim misskilningi og af hvers undirlagi er fjallað hér 4 línum neðar.
Sjá 1894.

Fingraför Stalíns: Sjá slóð til hans hér neðst.

Mynd af utanþingsstjórninni á Þingvöllum í rigningunni 17. júní 1944. Myndin stækkar ef smellt er á hana:

HeimildSarpur (opnast í nýjum flipa)

Í Sovét-Íslandi, óskalandið, bls. 74, setur Þór Whitehead fram kenningu um það hvers vegna fullveldið 1. desember 1918 féll í skugga fyrir lýðveldisstofnuninn og vitnar í mann handgenginn Stalín: ,,...hugmynd Einars Olgeirssonar að taka þjóðernisstefnuna ...í þjónustu sósíalismans. Ísland hefði ekki öðlast raunverulegt fullveldi 1918 heldur væri ánauðug nýlenda erlends auðvalds ...Því ætti Kommúnistaflokkurinn að taka forystu í nýrri sjálfstæðisbaráttu".
Óskandið, Sovét-Ísland, gæti ekki orðið að veruleika með Danakóng sem þjóðhöfðingja.
Og á bls. 371, að ,,þjóðstjórnin", A, B, D, 17. apríl 1939 til 16. maí 1942, hafi reynt að halda leyndri samvinnu sinni við setulið Breta ...af ótta við að sósíalistum (C) tækist nú loks að snúa þjóðernishyggju Íslendinga gegn stjórnarflokkunum".
Bls. 428: ,,...Áki Jakobsson ...rh. Sósíalistaflokksins (í Nýsköpunar- stjórninni 1944-1947): ...þjóðernistal kommúnista hefði verið eintóm blekking, ...kaldrifjuð taktík ...heppilegur áróður". (Matthías Jóhannesson. Samtöl III, bls. 15). Kommúnistar drógu fyrr hvergi dul á að þeir litu á Rússland sem sitt föðurland sem og alþýðu allra landa. (Sjá 1930).

Saga Íslands XI, bls. 7: ,,Misskilningur sem víða gætir enn, að Ísland hafi fyrst orðið sjálfstætt ríki 17. júní 1944.”

Sungið var á Þingvöllum 17. júní:
Nú skal söngur hjartahlýr / hljóma af þúsund munnum / þegar frelsisþeyrinn dýr / þýtur í fjalli og runnum.

Þorbjörn Björnsson frá Veðramóti, b. Geitaskarði: ,,Skyggnst um af heimahlaði, bls. 206: ,,Ég sem flestir Íslendingar fagna náðu marki lengi þráðs fullveldis. (leturbr. GG) Þess vegna fagnar íslensk þjóð 17. júní 1944 sem sigurhátíð".

Þegar forsætisráðherra, lögfræðingur, mótmælti 9. apríl 1940 vissi hann hinsvegar nákvæmlega hvað hann gerði og kallaði hernám Breta: ,,...brot á löglegum réttindum Íslands sem frjáls og fullvalda hlutlauss ríkis".

Þjóðviljinn kvað í forystugrein 15. febrúar 1941 að með hersetu Bandaríkjamanna væri sjálfstæði (!) vort glatað.
Og 1964 varð Ísland ,,aftur" nýlenda erlendra álversauðhringa í greinum Einars Olgeirssonar í Rétti það ár.

Um frelsi: Sjá Karl Sigurbjörnsson, Í helgum steini, bls. 288.

Áttræður, 1969, skrifar Bjarni Bjarnason á Laugarvatni í Suðra l, bls. 49: ,,Hilmar Finsen var af góðu íslensku bergi brotinn, en móðir hans var dönsk".

Í Skyggni 1, 102, segir Guðni Jónsson að oft eigi sér stað að brjálað fólk sé engum verra en vandamönnum sínum.

Einar Ólafur Sveinsson, Á Njálsbúð, 41: ,,Mörður (Valgarðsson) ... hatar Gunnar og Njál þvílíku hatri, sem vanþakklætið eitt getur alið af sér".

Um það virðast þeir ekki sannfærðir, menntamennirnir 14 sem sendu valdhöfum bréf með málamiðlunartillögu ,,sem allir mundu geta sætt sig við, þar sem hvorki var gengið á gerða samninga né notuð neyð sambandsþjóðar vorrar". (Öldin okkar II,198).
Þessi miðlunartillaga var lesin í Ríkisútvarpinu 29/11 1943 og vítti Morgunblaðið Útvarpið fyrir það og fengu lögskilnaðarmenn þá aldrei framar að láta þar í sér heyra.

Fyrir 1944?
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Reykjavík á 5. áratug 20. aldar:

FréttVísir (opnast í nýjum flipa)

Lögskilnaðarmenn tókust á við hraðskilnaðarmenn í lýðveldiskosningunni. Lögskilnaðarmenn voru einkum þeir sem dvalist eða menntast höfðu í Danmörk. Einn þeirra var Hannibal Valdimarsson, skólastjóri Gagnfræðaskólans á Ísafirði. Hann fékk þessa kveðju frá ritstjóra Vestra, hraðskilnaðarmanninum Sigurði Bjarnasyni frá Vigur, síðar ritstjóra Morgunblaðsins:

,,Það er krafa allra óspilltra Ísfirðinga, að svikarinn, skólastjóri Gagnfræðaskólans, segi af sér skólastjórastarfi. Bænum og þó fyrst og fremst unga fólkinu í bænum, sem gengur í þennan skóla er gerð margföld svívirðing með því að hlýta á námsbraut sinni forystu slíks grautarhauss og smámennis.
Um þessa kröfu verða Ísfirðingar að fylkja sér ..."

Ofanritað er fengið úr ,,Hannibal Valdimarsson og samtíð hans", bls. 352, og þar er líka að finna úrdrátt úr smáriti sem lögskilnaðarmenn gáfu út þegar öll blöð neituðu að birta áskorun 270 menntamanna um að ,,fresta sambandsslitum þar til viðræður hefðu farið fram við Dani".
Sigurður Nordal var einn þeirra sem átti grein í bæklingnum og lauk henni svo:
,,En framar öllu tel ég Íslendingum nauðsyn að halda virðingu fyrir sjálfum sér, gera ekkert, sem þeir blygðast sín fyrir nú og eiga eftir að skammast sín enn meir fyrir síðar." (Bls. 341).

Á bls. 344 segir frá að erindi frá lögskilnaðarmönnum fengust hvorki birt í málgögnum Sósíalista, Sjálfstæðisflokks eða Framsóknar né í Ríkisútvarpinu, sem neitaði líka öllum lögskilnaðarmönnum um að koma þar fram, en þeir voru 5 sem það reyndu, allt þjóðþekktir menntamenn.

Á bls. 341 er því haldið fram að lögskilnaðarleiðin hafi átt meira fylgi áður en þessari þöggun var beitt.

Karl Sigurbjörnsson, Skrifað í sand, bls. 111: ,,Nasisminn hertók táknmyndir fornrar norrænnar goðafræði (Þórshamarinn). Þjóðernisrómantíkin hafði rutt þá braut. Sjálfstæði Íslands er sannarlega ávöxtur þeirrar stefnu ... þjóðrembingur og hroki í garð erlendra þjóða og kynþátta hafði aldeilis mótað íslensk viðhorf um langan aldur."

Myndir

Einnig frá árinu 1944

  • Undan þýski herinn hörfar
  • Jónas frá formennsku felldur
  • Vestu'r í Dölum er Denni að veiðum
  • Enn er farið með sem morð
  • Kommar fara kollhnís enn
  • Í bjargi er héngum á hvannarrót
← 1944Í bjargi er héngum á hvannarrót1945 →Sjómannaskóli, skáldastreita