Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1945
1945
1945

Sjómannaskóli, skáldastreita

Hljóðbrot0:00

Lag 1 lítill, 2 litlir, 3 litlir fingur

SSjómannaskóli, skáldastreitaSkeiðfossvirkjun, hitaveita.Austu'r á Héraði Hitlers leitaað hann sé dauður fátt kann breyta.

Glúmur Gylfason · 1945

Heimildir og samhengi

Nýr glæsilegur Sjómannaskóli; ,,Lýðræðissinnaðir rithöfundar” segja sig úr Rithöfundafélagi Íslands og stofna Félag íslenskra rithöfunda, stundum nefnt Hagalínsfélagið því að einna fremstur í flokki þar var Guðmundur Gíslasonn Hagalín og hefur því ekki talið þennan lýðræðissinnaðan (smella á): Vefurgrapevine.is (opnast í nýjum flipa)

Jón Óskar segir frá því í Hernámsáraskáld, bls. 230, að þegar rithöfundar höfðu lengi gagnrýnt hvernig skáldastyrkjum var úthlutað, þá kastaði tólfunum þegar þeim var sjálfum ætlað að annst verkið, og klofnaði við það félagið.

Skeiðfossvirkjun í Fljótum gangsett.
Mynd M.V. Lund: MyndMats Wibe Lund (opnast í nýjum flipa)

Hitaveita lögð frá Reykjum í Mosfellssveit til Reykjavíkur.
15 árum fyrr kom heitt vatn frá borholum í Laugardal í 30 íbúðarhús, Landsspítalann, Austurbæjarskóla og Sundhöllina sem vígð var 1937.

Halldór Guðmundsson segir í ritinu Skáldalíf, að Ameríkanar hafi leitað að Hitler í Fljótsdal.

Í bók Þórs Whitehead ,,Milli vonar og ótta" er á bls. 85 sagt frá því, að Bretinn Cable, sem hér stjórnaði öllu sem hann vildi á fyrri heimsstyrjaldarárunum, hafi þá meinað Gunnari Gunnarssyni að flytja utan bjarndýrsfeld. Skáldinu hafi mislíkað stórlega og ekki litið Breta réttu auga síðan. Í Þýskalandi var Gunnar í miklum metum og seldust bækur hans þar vel. Þegar Rússar með vitund og vilja Hitlers réðust á Finnland 30. nóvember 1939 var Norðurlandabúum - öðrum en kommúnistum - misboðið. Þá, í ársbyrjun 1940, gerði Gunnar Gunnarsson sér ferð til Þýskalands þeirra erinda að tala máli Finna við m.a. Göbbels og Hitler sjálfan. Á þeim fundum létu þeir móðann mása og kom Gunnar varla orðið að, sbr. bls. 97 - 110 í fyrrnefndri bók Þórs.
Þrjátíu og þremur árum síðar sagði Gunnar við Þ.W. að kólnað hefði með sér og nasistum vegna svikráða Hitlers við Finna. Bls.113.
Um Cable þennan sjá nánar 1917.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Síðari heimsstyrjöldinni lauk í evrópu með uppgjöf Þjóðverja 8. maí.
FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Stríðið tapað:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

The party is over:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Hitler dauður (franska):
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Hitler dauður (ítalska):
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Hitler dauður (enska):
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Njósnir Þjóðverja á Íslandi:
FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)
Berlín júlí 1945:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1945

  • Dýrt sig velur dýrið selja
← 1944Í bjargi er héngum á hvannarrót1945 →Dýrt sig velur dýrið selja