Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1944
1944
1944

Kommar fara kollhnís enn

KKommar fara kollhnís ennkónginn danska átelja:,,Bandaríkja- mega menná Miðnesheiði dvelja".

Glúmur Gylfason · 1944

Heimildir og samhengi

Óskar Guðmundsson: ,,Alþýðubandalagið, átakasaga, bls. 33:
Árið 1938 lýsti Einar Olgeirsson vilja sínum að auka samstarf við Bandaríkin, einnig í öryggismálum. Þegar fyrst kom til álita að Bandaríkjamenn leystu breska herinn af hólmi var hins vegar komið annað hljóð í strokkinn. Sósíalistaflokkurinn var þá enn að berjast gegn ,,heimsvaldastríðinu" ...meðan griðasáttmálinn (Stalíns við Hitler) var í gildi og kvað Þjóðviljinn í forystugrein 15. febrúar 1941 að með hersetu Bandaríkjamanna væri sjálfstæði (!) vort glatað.

Eftir innrás Þýskalands í Sovétríkin 22. júní 1941 er aftur og enn einu sinni snúið við blaðinu. Þá vildi Sósíalistaflokkurinn ekki lengur hafa Ísland hlutlaust gagnvart ,,heimsvaldastríðinu", þá loks var skollið á ,,frelsisstríð gegn fasisma": ,,Við þurfum varnir gegn hættunni, varnir og aftur varnir, eins fullkomnar varnir og við verður komið". Og vinna fyrir herinn, sem áður var þjóðhættuleg, ,,setuliðsvinna", hét orðið ,,landvarnarvinna"
Í leiðara Þjóðviljans í maí 1944 er hinni nýju afstöðu Sósíalistaflokksins gagnvart Bandaríkjunum vel lýst, en þar er mótmælt þeirri fullyrðingu Kristjáns konungs tíunda, að Ísland sé hertekið. Og segir þar m.a.: ,,Ísland var hertekið fyrir réttum 4 árum síðan. En með herverndarsamningnum við Bandaríkin í júlí 1941 hættir sú hertaka og samningur er gerður um hervernd, samningur þar sem hin íslensku stjórnvöld leggja áherslu á að þau geri hann frjáls... Og þess vegna er fullyrðing konunsins um hernámið óréttmæt og röng."

En þetta átti eftir að breytast aftur:
,,Enginn þarf að fara í neinar grafgötur um það, að herverndarsamningurinn 1941 hafi verið nauðungarsamningur og Bandaríkjamenn hernámu þá Ísland", segir Einar Olgeirsson í endurminningum sínum.
Framámenn í röðum íslenskra sósíalista voru framarlega í röðum þeirra sem unnu fyrir ameríska herinn á stríðsárunum, m.a. á vegum leyniþjónustunnar."

VefurFacebook (opnast í nýjum flipa)

Vefurtiktok.com (opnast í nýjum flipa)

VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)

VefurFacebook (opnast í nýjum flipa)

Vefurpanorama.it (opnast í nýjum flipa)

Vefurpanorama.it (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1944

  • Undan þýski herinn hörfar
  • Jónas frá formennsku felldur
  • Vestu'r í Dölum er Denni að veiðum
  • Enn er farið með sem morð
  • Í bjargi er héngum á hvannarrót
  • Í bjargi er héngum á hvannarrót
← 1944Enn er farið með sem morð1944 →Í bjargi er héngum á hvannarrót