Vestu'r í Dölum er Denni að veiðum
Lag Rósin
Vestu'r í Dölum er Denni að veiðumdregur laxa sí og æbilar þá á bæjarleiðumbíllinn Gugga, Ár- við bæ.
Ölfusár fær djúpi´ í dúsaDenna bíll, - er Jón þá ókfrá varadekki og völtum brúsatil virðingar sem lögga klók.
Heimildir og samhengi
Á mjólkurbílnum X-47 dró Jón I. Guðmundsson, síðar yfirlögregluþjónn, bilaðan mjólkurbíl, X-14, frá Árbæ, austan Elliðaáa til Ölfusár - eins og Selfoss var þá kallaður.
Þegar bílarnir óku út á Ölfusárbrú um kl. 02 þann 6. september dróst burðarstrengur úr festingu og féllu báðir í ána. Bíll Guðlaugs Magnússonar (Guggi) snerist hring í loftinu og lenti á hjólunum á grynningum á nyrðri barmi meira en 20m djúprar gjárinnar sem áin fellur þar í. Vinkiljárn á brúarhandriðinu skar í sundur dráttarkaðalinn á milli bílanna og því skildu leiðir þegar Jón féll með bílnum X-47 í árstrenginn sem æðir um gjána. Hefur aldrei bólað á honum síðan, en Jón var syndur og tókst að bjarga sér svo sem síðar greinir.
Bílar og brú hrundu ekki hávaðalaust svo að fólk bar að og óð með kaðal áleiðis til til Gugga sem náði að festa hann í bílinn og handstyrkti sig síðan til lands. Náði vatnið honum í klof.
Heimild: Guðlaugur Magnússon, Ysjur og austræna, bls. 268; Hannes Ingvarsson, Ysjur II, 247.
Steindór Sigursteinsson (Denni) mjólkurbílstjóri, segir á bls. 168 í Ysjum og austrænu það hafa verið sinn mjólkurbíll, X-47, sem féll af Ölfusárbrú 6. september 1944.
Denni var í fríi og við veiðar í Laxá í Dölum þennan dag og segist hvorki myndi hafa haft sundkunnáttu né þrek til þess snarræðis sem Jón sýndi í árflaumnum með því að sleppa mjólkurbrúsanum og synda að varadekkinu sem þar barst með straumnum.
Ferð Jóns á varadekkinu lauk fyrst neðan við hávaðana norður og vestur af kirkjugarðinum. Komst kaldur og blóðugur af sjálfsdáðum úr ánni og til Selfossbæjarins þar sem honum var búin sæng.
Dekksins var vitjað og geymt til minja. (Ysjur II, bls. 182).
Brúin reist við 30. september og þá opnuð fyrir bílaumferð - þó þannig að vörubílar máttu aðeins flytja hálft hlass og sáu mjólkurbílstjórar um selflutninga. ((Ysjur II, bls. 352).
Ný brú var tekin í notkun 21. desember 1945.
Um hádegi sama dag og brúin féll hafði Helgi Ágústsson frá Birtingaholti, umsjónarmaður allra flutninga KÁ og MBF, fengið bát fluttan frá Stokkseyri til Selfoss. Bátnum stýrði eigandinn, Símon Sturlaugsson frá Kaðlastöðum og tók þegar með Stokkseyringum, sem kunnu áralagið, að selflytja mjólkurbrúsana yfir Ölfusá skammt neðan brúar. Til nyrðri bakkans var þá um Brúarhlöð kominn fyrsti mjólkurbíllinn og lagði af stað til Reykjavíkur upp úr hádegi hlaðinn fullum mjólkurbrúsum.
Heimild: Jón Ingvarsson, Ysjur II, bls. 117.
Á bls. 362 í Ysjum II segir frá tildrögum þess að fólk kom að Ölfusárbrú í myrkri um nótt og aðstoðaði mjólkurbílstjórana.
FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)
Guðmundur Kristinsson segir frá því í bókinni Styrjaldarárin á Suðurlandi, bls. 146, að einnig hafi verið ferjað yfir ána út frá Fagurgerði. Vestan ár hafi KÁ nýtt fimm herbragga, sem stóðu við núverandi Jórutún, undir vörur frá Reykjavík og tvo til bílaviðgerða en einn til mjólkurmóttöku úr sveitunum vestan Ölfusár.
VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)
Bjössi á mjólkurbílnum:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)