Árið 1940

t.d.

2 vísur frá árinu 1940
  1. 1940Lag: Ó, fögur er vor fósturjörð

    Þar féll raki í þurra jörð

    þarf nú Bretinn hendur
    gjaldeyrir er Hermanns hjörð
    af himnum ofan sendur
    skóflur ganga af skaftinu
    skuldir hverfa allar
    hrundir týna haftinu
    herinn ver og spjallar.

    Þjóðverjar ráðast fyrirvaralaust á Danmörk og Noreg 9. apríl. Bretar hernema Ísland 10. maí. Stríðsgróði eftir kreppu 4. áratugarins. (1943). Bretavinna. ,,Ástandið". https://www.youtube.com/shorts/CudI1pc-IpU…

    Hlusta
    Hermann Jónasson forsætisrh.HerbraggarMammonsdýrkun+3
  2. 1940

    Að Gísla ekki ægði sjór

    ei utan af verður skafið
    í stríðinu þegar með félögum fór
    á Frekjunni yfir hafið.

    12. ágúst kom 32ja tonna vélbátur, Frekjan, til Vestmannaeyja frá Frederikshavn á NA Jótlandi eftir 22ja sólarhringa ferð um Noreg og Færeyjar. Gísli Jónsson alþm. var útgerðarforstjóri og 1. vélstjóri enda handhafi…