Árið 1918

t.d.

5 vísur frá árinu 1918
  1. 1918Lag: Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903

    Ýtum þykir einu skeika

    ekki meta
    lúðraþeytarar þá er leika
    þjóðsöng Breta.

    Sjálfstæði Íslands var auglýst með því að ríkisfáni var dreginn að húni við stjórnarráðið kl. 11.45, að viðstöddum ræðismönum erlendra ríkja. Sigurður Eggerz, fjármálaráðherra, flutti ræðu, danskt herskip skaut 21…

    Hlusta
    Stjórnarráðið 1. des. 1918+1Myndband
  2. 1918Lag: Fyrr var oft í Koti kátt

    Katla sinni köllun trú

    kastar af sér vatni
    nást mun lítil nyt úr kú
    nema tíðin batni.
    Þeim virtist líða vel í gær
    sem varð í dag að líki.
    Samið Einar Arnórs fær:
    Ísland sjálfstætt ríki.
    1 erindi til viðbótar

    Kötlugos og 1917-1918 var harðasti vetur 20. aldar. Kol höfðu þá hækkað margfalt í verði í ófriðnum, en 20 ár í að hitaveita kæmi í Rvk. Fyrir áramót fannfergi nyrðra en frosthörkur eftir hátíðar. Fraus þá firði svo…

    Hlusta
    Kötlugos 1918Spánska veikin1. desember 1918+7
  3. 1918Lag: Stína og brúðan, eftir Guðjón Bjarnason

    „Alþýðu pínir danskur djöfull"

    dag hvern fær oss rúið
    í spönsku veiki er gjörðist gjöfull
    gátum á hann snúið.

    Spánska veikin: Jón Birgir Pétursson, Meyvant á Eiði, bls. 34: „var ég nýlega farinn að vinna hjá DDPA ...Det Danske Petroliums Aktieselskab, ...síðar Olíufélagið hf. ...Íslendingar voru ekki lengi að smíða sína útgáfu…

    Hlusta
    Miðbæjarskólinn, Rvk.Gamla slökkvistöðin, Tjarnargötu, Rvk.
  4. 1918Lag: Veik er mundin, sr. Bjarni Þorsteinsson, Þjóðlög, 915

    Veitingaskáli, vegur, brú

    og verslun hjá
    svo Landsbankinn opnar útibú
    við Ölfusá.

    1891 kemur brú á Ölfusá þar sem nú er bærinn Selfoss. Greiðasala var í Tryggvaskála við syðri brúarsporðinn frá 1901. 1. janúar 1947 varð Selfoss sérstakt hreppsfélag. Nafnið dregið af bóndabýli vestan við núverandi…

    Hlusta
    Landsbankinn Selfossi 1919 til 1953. Austurvegur 21, Selfossi, Gamli Landsbankinn, Selfossi, mennirnir nafngreindir í textanum að ofan.Málverk: G. Gränz+4
  5. 1918

    Bændur hætta að færa frá

    fækka rjómabúum
    kjöt er vilja fleiri fá
    fjölga ekki hjúum.
    1 erindi til viðbótar

    Ágúst Helgason, Birtingaholti, Endurminningar, bls. 120: ,,Á styrjaldarárunum 1914-1918 hækkuðu vinnulaun ógurlega. ...Hættu þá allir að færa frá ám, en lögðuð þess í stað áherzlu á dilkaframleiðslu. ...Rjómabúin…