Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1918
1918
1918

Ýtum þykir einu skeika

Hljóðbrot0:00

Lag Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903

ÝÝtum þykir einu skeikaekki metalúðraþeytarar þá er leikaþjóðsöng Breta.

Glúmur Gylfason · 1918

Heimildir og samhengi

Sjálfstæði Íslands var auglýst með því að ríkisfáni var dreginn að húni við stjórnarráðið kl. 11.45, að viðstöddum ræðismönum erlendra ríkja. Sigurður Eggerz, fjármálaráðherra, flutti ræðu, danskt herskip skaut 21 fallbyssuskoti og hljómleikasveit Reynis Gíslasonar lék breska þjóðsönginn.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Eiríkur frá Brúnum vissi að það var honum til heiðurs að Tívolíhljómsveitin í Kaupmannahöfn lék Eldgamla Ísafold í þrígang meðan hann var þar í skemmtigarðinum í boði Péturs Bryde, (1905) Vestmannaeyja- og Víkurkaupmanns árið 1876.
(Sverrir Kristjánsson, Bóndinn á Brúnum, 14).
Og enn sýndu danskir landanum sóma á öðrum áratug 20. aldar, þegar Sigurjón á Laxamýri var í Konunglegu óperunni og fluttu ,,íslenska" lagið: Í dag er glatt í döprum hjörtum, og það í miðri Töfraflautunni.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Til umhugsunar: Er hér að finna skýringuna á því hvers vegna sjálfstæðis Íslands er minnst 17. júní, en ekki 1. desember?

Torfi Þorsteinsson, Töfrar liðins tíma, bls. 153: ,,1. desember þetta ár varð Ísland fullvalda ríki. Ekki minnist ég þess, að ég heyrði á þann atburð minnst á Randversstöðum ...held að þjóðmálaáhugi hafi verið víðs fjarri Randversstaðabændum. Mér er næst að halda að þeir hafi talið að Hannes Hafstein væri enn ráðherra. Og hvað ætli þeir hafi látið sig nokkru varða hvort Ísland hélt áfram að vera óaðskiljanlegur hluti Danaveldis, ef þeir fengju sæmilegt verð fyrir ullina sína og kjötið?"

Saga Íslands XI, bls. 7: ,,Misskilningur sem víða gætir enn, að Ísland hafi fyrst orðið sjálfstætt ríki 17. júní 1944”.

Hannes Pétursson, Misskipt er mannanna láni, bls. 129: ,,Meðal trúnaðarstarfa Péturs á Reykjarhóli (Seyluhreppi) var gæsla þess fjár sem bændur seldu á fæti til Bretlands og skipað var út á Sauðárkróki. Einu sinni stóð hann ásamt fleirum yfir fjársafni á Móunum fyrir ofan Krókinn ... Þeir byrjuðu að syngja sér til hita. ... Eldgamal Ísafold. Og er þeir nú kyrjuðu lagið bar að Englendinga eða Skota, fulltrúa fjárkaupmannsins. Þeir þrifu af sér húfupottlokin um leið og þeir heyrðu Eldgamal Ísafold, ástkæra fósturmold".

Heimildir og tilvísanir:
Blaðið Ísafold 3. des. 1918 greinir frá því að hljómleikasveit Reynis Gíslasonar haf leikið umrætt enskt lag á lúðra.
Brautryðjandinn, Skálholtsútgáfan 2011, bls. 435; Saga 1974, Gísli Jónsson: ,,Í ríkisráði";
Einar Laxness: Saga og minni, bls. 218, Íslands saga III, 10-12;
Virkir dagar II, bls. 244, Í verum II, bls. 569.

Vísindavefurinn: ,,SambandslaganefndinVísindavefurinn (opnast í nýjum flipa), sem kom saman hér á landi í lok júní 1918, gerði til dæmis hlé á störfum sínum sunnudaginn 7. júlí og brunaði sér til upplyftingar í mörgum bifreiðum sem leið lá eftir Suðurlandsbrautinni upp að Geithálsi og þaðan eftir flutningabrautinni til Þingvalla. Með í för voru meðal annars ráðherrarnir íslensku. Um viku síðar var farin önnur bílferð enda hafði nefndin þá lokið störfum og frumvarp til sambandslaga tilbúið á pappírnum. En nú var farið austur yfir HellisheiðiVísindavefurinn (opnast í nýjum flipa). Áð var á Kolviðarhóli þar sem hægt var að kaupa veitingar, snætt í Sigtúnum við Ölfusárbrú og síðan haldið austur að Sogi og á hestum upp með því og Sogsfossarnir skoðaðir. Þangað var ekki bílfær vegur þegar hér var komið. Flestir gistu um nóttina á Eyrarbakka, örfáir í Grímsnesi. Um nónbil á sunnudeginum var haldið af stað til Reykjavíkur og boðið upp á kaffi og pönnukökur á Kolviðarhóli. Um kvöldið var boð hjá forsætisráðherra".

Ólafur Rastrick segir frá bls. 133 í ,,Íslensk menning og samfélagslegt vald 1910-1930" að fengnu fullveldi (1918) yrði ríkisvaldið að styðja við menningarlíf svo umheiminum yrði ljóst að á Íslandi byggi siðmenntað fólk. Í orð dr. Gylfa Þ. Gíslason frá 1942 vitnar Ó.R. síðan: ,,Sjálfstæðisbarátta smáþjóðar er eilíf. Einn mikilvægasti þátturinn í slíkri baráttu er verndun menningar".

AlfræðiVísindavefurinn (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1918

  • Katla sinni köllun trú
  • „Alþýðu pínir danskur djöfull"
  • Veitingaskáli, vegur, brú
  • Bændur hætta að færa frá
← 1917Íhald sér sig ekki úr færi1918 →Katla sinni köllun trú