Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1918
1918
1918

Katla sinni köllun trú

Hljóðbrot0:00

Lag Fyrr var oft í Koti kátt

KKatla sinni köllun trúkastar af sér vatninást mun lítil nyt úr kúnema tíðin batni.Þeim virtist líða vel í gærsem varð í dag að líki.Samið Einar Arnórs fær:Ísland sjálfstætt ríki.

Eins varð dauði annars brauð .er eta bauð þar hvalurslóð nær Blöndu af blóði rauðþá björg hlaut Strönd og Dalur.

Glúmur Gylfason · 1918

Heimildir og samhengi

Kötlugos og 1917-1918 var harðasti vetur 20. aldar. Kol höfðu þá hækkað margfalt í verði í ófriðnum, en 20 ár í að hitaveita kæmi í Rvk. Fyrir áramót fannfergi nyrðra en frosthörkur eftir hátíðar. Fraus þá firði svo landsamgöngur færðust þangað út:
Barðstrendingar sóttu verslun til Flateyjar á/með sleða eða komu ríðandi. Sáu þá sumir Flateyingar hest í fyrsta skipti. Kolum ekið frá Tjörnesnámum til Húsavíkur eftir lagnaðarís. Sami háttur við Eyjafjörð eftir að ytri ísinn rak frá. Þá komust skip til Hjalteyrar og varan sótt þangað á sleðum sem hestar drógu til Akureyrar.
Vinnumaður á Möðrudal segir í Ævisögu Afríkufarans, bls. 72, útg. 1937: ,,...einn sunnudagsmorgun var frost -39°C úti en inni í baðstofunni -20°C". Frostið mældist -37,9°C á Grímsstöðum á Fjöllum.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Guðvarður Jónsson segir í ,,Hitt og þetta úr Djúpinu”, bls. 124, að hestar hafi dregið kerrur til Ísafjarðarkaupstaðar á ís innan úr Djúpi. Víða fór klaki aldrei úr jörð.
Gunnar Friðriksson, ,,Mannlíf í Aðavík", bls. 35:,, ...var hægt að ganga frá Ísafirði þvert yfir Djúpið og upp á Snæfjallaströnd og svo frá Grunnavík upp á Jökulfirði að Hesteyri".

Um hvalveiðar á ís í Húnaflóa ritar sr. Pétur Þ. Ingjaldsson, bls. 190 í Búsæld og barningur. Þar segir frá því að 5. janúar var Húnaflói fullur af ís. Urðu þá 5 háhyrningar innlyksa í vök austan við Blönduós og tveir hnúfubakar í annarri um 1 km fram undan Vindhælisstapa skammt frá Skagaströnd.
Bændur fóru í smiðju og smíðuðu sér lagvopn og skutla eða sóttu sér ljái, vírkaðla og stórviðarsagir til að saga rásir í ísinn.
Að hvölunum unnu alls 65 manns í mánuð meðan frost var um og yfir 30 gráður á Celcius.
Hvalkjöti, spiki og lýsi var ekið burt á stórum sleðum sem hestar gengu fyrir en þó var meira um litla sleða sem menn beittu sjálfum sér fyrir.

Spánska veikin barst til Reykjavíkur með skipum 19. okt.
Guðmundur Magnússon, Thorsararnir, segir frá því á bls. 84 að í nóvember hafi ástandið verið svo ískyggilegt, að Thor Jensen hafi boðist ,,til að koma upp mötuneyti fyrir almenning ...Sláturfélag Suðurlands bauð eldhús sitt og matskála ...við Skúlagötu (Rvk.). Farið var með mat til þeirra sem ekki treystu sér á staðinn ...komu um 350 manns í mötuneytið daglega fram til áramóta".

Meðal þeirra sem dóu um aldur fram úr spönsku veikinni voru: Torfhildur Hóm, skáld, dr. Björn Bjarnarson frá Viðfirði, Guðmundur Guðmundsson (skóla)skáld og Guðmundur Magnússon, skáldanafn Jón Trausti.

Tilvísun: Spánska veikin, kafli bls. 112 í ,,Komið víða við" eftir Þórarin Grímsson Víking.

FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)

Ísland sjálfstætt ríki 1. desember eftir þjóðaratkvæðagreiðslu um sambandslagasamninginn. Kosningaþátttaka 44% á Íslandi.
1944 var kjörsókn 98,3% í kosningu um hvort breyta skyldi stjórnarskránni þannig að í stað orðsins konungur kæmi forseti. Sjá nánar það ár.
Saga Íslands XI, bls. 7: ,,Misskilningur sem víða gætir enn, að Ísland hafi fyrst orðið sjálfstætt ríki 17. júní 1944.”
Tilvísun: Guðmundur J. Einarsson, Kalt er við kórbak, bls. 186.

Á Alþingi höfðu tveir þingmenn greitt atkvæði gegn sambandslagafrumvarpinu, Benedikt Sveinsson og Magnús Torfason. Báðir andvígir gagnkvæmum ríkisborgararétti við Dani, sem þá flyttu svo margir til Íslands að gætu ráðið hér því sem þeir vildu.

Ólafur Rastrick segir frá bls. 133 í ,,Íslensk menning og samfélagslegt vald 1910-1930" að fengnu fullveldi (1918) yrði ríkisvaldið að styðja við menningarlíf svo umheiminum yrði ljóst að á Íslandi byggi siðmenntað fólk. Í orð dr. Gylfa Þ. Gíslason frá 1942 vitnar Ó.R. síðan: ,,Sjálfstæðisbarátta smáþjóðar er eilíf. Einn mikilvægasti þátturinn í slíkri baráttu er verndun menningar".
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1918

  • Ýtum þykir einu skeika
  • „Alþýðu pínir danskur djöfull"
  • Veitingaskáli, vegur, brú
  • Bændur hætta að færa frá
← 1918Ýtum þykir einu skeika1918 →„Alþýðu pínir danskur djöfull"