Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1917
1917
1917

Íhald sér sig ekki úr færi

ÍÍhald sér sig ekki úr færiað andæfa bákni SÍSsem í augum báðum bæribjálka en ekki flís.

Glúmur Gylfason · 1917

Heimildir og samhengi

Hallgrímur Kristinsson (1876-1923) ráðinn framkvæmdastjóri SÍS með aðsetur í Reykjavík. Tók þá Sigurður, bróðir Hallgríms, við stjórn KEA, sjá 1902.
Tók SÍS þá að sér inn- og útflutning fyrir kaupfélögin.
Í sömu svifum stofnaði ríkisstjórnin til Landsverslunar með nauðsynjavörur í styrjöldinni og forstjóri SÍS þá settur á hálf laun, en tók sæti í stjórn Landsverslunarinnar.
Bæði þessi fyrirtæki urðu heildsölum þyrnir í augum svo sem lesa mátti h.u.b. daglega í Morgunblaðinu og svarað var m.a. í Tímanum og Degi. Var þar farið um víðan völl: AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)

Héðinn Valdimarsson, LANDSVERSLUN, grein í Tímariti íslenskra samvinnufélaga 1919, bls. 69: ,,...fáir menn, sem virðast alls ekki hæfari né dugmeiri en fók er flest, geta rakað saman verslunararði sem er stórkostlegur í samanburði við þann arð sem verkamenn og embættismenn fá af sinni vinnu eða framleiðendur af sinni framleiðslu...".

Sá fjölhæfi (1917sjá hér til hliðar) Björn Kristjánsson gaf út svæsinn 71. bls. áróðursbækling gegn SÍS og kaupfélögunum 1922, ,,VERSLUNARÓLAGIÐ". Þar virðist líka á ferðinni metingur Versl-inga og MR-inga : ,,...best sé að senda gáfuðustu og framsýnustu mennina á verslunarskóla, en að gera miðlungsmennina, sem skólaveginn fara, að embættismönnum...".

Tilvísun: Úr Djúpadal að Arnarhóli, Sagan um Hallgrím Kristinsson eftir Pál H. Jónsson, bls. 318-325.
Sjá og 1919 um Morgunblaðið.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1917

  • Styrjöld og skömmtun skollin á
  • Þá Einar Ben. fær borguð út
  • Enskir sendu ungan mann
  • Þorlákur hafði viðskiptavit
  • Verslun Guðlaugs lá nær lá
← 1917Verslun Guðlaugs lá nær lá1918 →Ýtum þykir einu skeika