Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1917
1917
1917

Þorlákur hafði viðskiptavit

Hljóðbrot0:00

Lag Sá frjáls við lögmál

ÞÞorlákur hafði viðskiptavitvinsæll millum LandaIngibjörg færði flest í nytog fluginu afkomanda.

Glúmur Gylfason · 1917

Heimildir og samhengi

+ Þorlákur Ó. Johnson f. 1838. ,,Duglegur og vinsæll” (Ísl. æviskrár) af fyrstu kynslóð íslenskra kaupmanna. Móðir hans, Sigríður Þorláksdóttir pr. Loftssonar, Móum á Kjalarnesi, átti að móður Sigríði þá Markúsdóttur, sem bjargaðist í ferjuslysinu mannskæða á Ölfusá 1800, sem fjallað er um þar.
Faðir Þorláks var sr. Ólafur Johnsen (Einarsson, borgara, Rvk.) bróðir Ingibjargar konu Jóns Sigurðssonar forseta. Sjá 1885.

Þau hjón, Þorlákur og Ingibjörg Bjarnadóttir frá Esjubergi á Kjalarnesi, voru foreldrar fyrsta heildsalans, Ólafs Þ. Johnson (1906), í Þingholtsstræti 29A, Esjuberg, sem enn er eitt virðulegasta hús landsins. Sonur Ólafs: Örn, fyrsti forstjóri Flugfélags Íslands. Ingibjörg og Þorlákur áttu og dótturina Sigríði, tengdamóður Halldórs Laxness í fyrra hjónabandi. Sjá 1800, 1919.

Vefuricelandair.com (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Um konu Þorláks, Ingibjörgu Bjarnadóttur segir Kristleifur Þorsteinsson, Úr byggðum Borgarfjarðar, 110: ,,Símon Dalaskáld hafði þá básúnað um allt landið fegurð Ingibjargar á Esjubergi, sem var þar einbirni Bjarna hins ríka".
Sem ekkja gerðist hún umsvifamikil í framkvæmdum: Á eftirfarandi slóð er fjallað um Ingibjörgu og móður hennar undir lið 29:
Vefurkvennasogusafn.is (opnast í nýjum flipa)

Ævisaga Þorláks eftir Lúðvík Kristjánsson heitir Úr heimsborg í Grjótaþorp.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1917

  • Styrjöld og skömmtun skollin á
  • Þá Einar Ben. fær borguð út
  • Enskir sendu ungan mann
  • Verslun Guðlaugs lá nær lá
  • Íhald sér sig ekki úr færi
← 1917Enskir sendu ungan mann1917 →Verslun Guðlaugs lá nær lá