Árið 1679

t.d.

2 vísur frá árinu 1679
  1. 1679Lag: Langt fyrir utan ystu skóga

    Vert er Þorleif við að staldra

    og víst má færa það til sanns,
    að enginn vinur var hann galdra
    vitna um það brennur hans.

    Lögmannaskipti NV: Segir af sér Þorleifur Kortsson, lm. NV frá 1662, d. 1698. J. Espólín í Árbók 7. hl. 2: ,,Þorleifur lögmaður hafði verið mest virður fyrir alvöru hans hina miklu við galdramenn, lauk og mjög brennum…

    Hlusta
    Galdrabrennasm. Þorleifur bjó báðum megin Hrútafjarðar
  2. 1679Lag: Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903

    Til Indía Jón með dönskum dró

    diktaði' um reisu sín
    afgjaldalaust hér bóndi bjó
    brúkaði nikótín.

    + Jón Ólafsson, Indíafari, f. 1593. Fór víða um heim með enskum, síðan skytta í herliði Dana. Kom aftur til Íslands 1626. Síðast bóndi á Vestfjörðum, fékk að lyktum Eyrardal afgjaldalaust til æviloka vegna fyrri…

    Hlusta
    TóbakEyri v. Seyðisfjörð, kirkjustaður IndíafaransSlaget på Reden: orrusta danskra og enskra 1801 +3