Vísur eftir Glúm Gylfason um

Annálsverð tíðindi á árunum1540 til 1950

Ein eða fleiri annálsverð tíðindi hvers árs færð í rím, frá siðaskiptum þar til Ísland gekk í NATO — með heimildum, myndum og hljóðbrotum.

vísur
868
ár
412
aldir
5

Vísurnar

t.d.

16. öld · 98 vísur, í tímaröð
  1. 1540Lag: Faðir vor sem á himnum ert

    Lútherskri stefnu áfram ýtt

    af ungum prestum siðbót flýtt
    úr Skálholtsfjósi telst það títt
    að testamenti nýtt er þýtt
    Ögmundi var þó um það lítt
    en Oddi þar á fingrum hlýtt.

    Sagt er að Oddur Gottskálksson hafi unnið í Skálholtsfjósi að þýðingu Nýja testamentisins til þess að Ögmundur Pálsson, síðasti kaþólski Skálholtsbiskupinn, yrði þess ekki var. Eftir Oddi er haft: „Jesús, lausnari vor,…

  2. 1541

    Næstelsta mannsins starf er stríð

    stundað af körlum ár og síð
    boða nú knektarnir landsins lýð
    að liðin sé andkristin páfans tíð.

    26 kaþólskir prestar úr Skálholtsstifti sóru á Þingvöllum eið að lútherskri kirkjuskipan Kristjáns III. að viðstöddum vopnuðum kóngsins knektum, þ.e., málaliðum. Prestar í stiftinu hafa verið á annað hundrað samtals.…

  3. 1542Lag: Bjórkjallarinn

    Með bjórglas einn við bar ég sit

    og bergi daginn langan
    nei, þetta er sko ekkert vit
    því Skálholtsprestinn skyldi taka fangan.
    Ég frétti er las, að fæddi Gunna tvö
    og frekar eitt í viðbót.
    og fyrr en varir þau eru orðin sjö
    svo ekki er hér vanþörf á siðbót.

    Fyrsti biskup í Skálholti eftir siðbót Lúthers var Gissur Einarsson (1512-1548). Hann tók biskupsvígslu af J. Bugenhagen í Vor Frue kirke í Kaupmannahöfn. En Bugenhagen var sjálfur ekki áður vígður kaþólskur prestur.…

    Johannes Bugenhagen+1Myndband
  4. 1543Lag: Sá frjáls við lögmál fæddur er

    Með orgelskrifli um Atlantshaf

    yfir Gissur strekkti
    hjá bróður í Kristi hans brúður svaf
    sem boðorð sjötta´ ei þekkti.
    1 erindi til viðbótar

    Fyrsti biskup í Skálholti eftir siðbót Lúthers var Gissur Einarsson (1512-1548). Íslenskar æviskrár I, 466: ,,Eysteinn Þórðarson kirkjuprestur í Skálholti og er orðinn það 1539. Í utanför Gissurar Einarssonar til vígslu…

    Myndband
  5. 1544

    Þjóðverjarnir þjást og gráta

    þegar Danir beita krók
    illa fengna árabáta
    Otti Stígs af þýskum tók.

    Höfuðsmaður Danakóngs, Otti Stígsson, herjar á Þjóðverja og tekur af þeim 45 báta, sem þeir hafa að líkindum náð af Englendingum, e.t.v. í Grindavík 1532. Hamborgarar höfðu að sögn ráðið lögum og lofum í Hafnarfirði á…

  6. 1545Lag: Jólasveinar einn og átta

    Jón má þakka sínum sæla

    hve sagan hirðir fátt um ljótt
    en ef að kýrnar mættu mæla
    myndi biskup varla rótt.
    2 erindi til viðbótar

    Hér er átt við Bjarnarnesreiðar Jóns biskups Arasonar og sona hans 1545 og 1547, sjá nánar þar, en meðal annarra illverka voru kýr lokaðar málþola inni í fjósi 8 dægur. Jónas Jónsson hirti lítt um að geta illverka ef…

  7. 1546Lag: Fyrr var oft í Koti kátt

    Marteinn Lúther á banabeð

    blessuð sé hans minning
    siðaskiptin syðra skeð
    sjóli tók þar vinning
    sér dæmdi kóngur klaustrin öll
    Kristján þriðji heitir
    prófastdæmi og prestaköll
    páfi nýr sá veitir.

    Martin Luther (1493-1546) sem mótmælti árið 1517 í 95 greinum framferði páfans þá, t.d. aflátssölu. Siðbreyting hans samþykkt af prestum í Skálholtsstifti 1541, en 1551 nyrðra, sjá þar. Klaustrin tók kóngur, Christian…

  8. 1547Lag: Jólasveinar einn og átta

    Jón má þakka sínum sæla

    hve sagan greinir fátt um ljótt
    en ef að kýrnar mættu mæla
    myndi biskup varla rótt.
    2 erindi til viðbótar

    Hér er átt við Bjarnanesreiðar Jóns biskups Arasonar og sona hans 1545, en einkum þá síðari 1547. Herra Jón þóttist með ,,hinum illræmda Seyludómi" (Gbr.Js.bls.114) 21.jan.1527 hafa náð eignarhaldi á Bjarnaneseignum…

  9. 1547Lag: Blessuð sólin elskar allt

    Nær í Kaldaðarnesi kross

    niður Gissur tekur
    lítið þóknast þvílíkt oss
    þar af snart deyr sekur.
    2 erindi til viðbótar

    Gissur Skálhotsbiskup Einarsson tók niður krossinn helga í Kaldaðarnesi, sem kurlaður var í Skálholti 1560, sjá þar. Helgi mikil var á krossinum í kaþólsku og farnar til hans pílagrímsferðir á krossmessum, 3 maí og 14.…

  10. 1548

    Keisara skrifaði biskup bréf

    bað hann herskip senda
    þar Kristján þriðja kallar ref
    er kvalastað skyldi´ í enda.

    Auk páfa, sendi Jón Arason bréf til þess kaþólska  keisara, Karls 5. Í riti sínu um Jón Arason telur Páll Eggert Ólason að þar hafi Jón biskup beðið keisara um aðstoð og að innihald bréfsins hafi borist Kristjáni 3. til…

  11. 1549

    Martein fjötur færðu á

    frelsi Jón hann svipti
    vanheilagur vildi fá
    völd í Skálholtsstifti.

    Í septemberlok lét hans heilagleiki, herra biskup Jón Arason, syni sína, Ara og Björn, fara með flokk manna að nývígðum biskupi (superintendent) Skálholts, Marteini Einarssyni, við komu hans til Íslands, stöddum á…

  12. 1549Lag: Skapari stjarna, herra hreinn

    Daða í Snóksdal kænan kann

    kóngur að brúka, lútherskan,
    Jón biskup Arason svo með sann
    söng á h´ann allrahæst páfans bann.

    Guðbrandur Jónsson, Herra Jón Arason, frá bls. 219: ,,Með Daða Guðmundssyni kemur hinn eini maður í landinu sem sýnist jafnoki herra Jóns um karlmennsku og dirfsku og var það hinum lúthersku happ. ...hafði Daði í…

  13. 1550Lag: Gunnars Reynis Sveinssonar - texta hans breytt með leyfi

    Sýtti ei Ari, en sjá

    Björns frá börnum smá
    hvarflað eigi hugur getur.
    En hefðu aðrir staðið sig
    svo miklu, miklu, miklu, miklu
    betur?
    4 erindi til viðbótar

    7. nóvember hálshöggnir í Skálholti Jón Hólabiskup Arason, f. um 1484, og tveir af þremur eftirlifandi sonum hans: Björn, sem munnmæli segja að hafi kveinkað sér með orðunum: ,,Ó, börnin mín, ung og smá", og Ari, sem…

    Hlusta
    Mynd í turni Hóladómkirkju: herrra Jón ArasonMinnismerki um aftöku Jóns biskups Arasonar og Ara og Björns, sona hans í SkálholtiJón Arason var handtekinn hér í Kirkjugarðinum á Sauðafelli+1
  14. 1550Lag: Eg eri jólamaðurin - (H.J. Höjgaard)

    Kóngur páfi orðinn er

    enda prestar falir
    góðu verkin Guð ei sér
    gilda ríkisdalir.
    1 erindi til viðbótar

    Kristján III. gerist páfi ríkiskirkju í Danaveldi 1536-7. Tók sér titilinn summus episcopus (æðsti biskup) en superintendent skyldi verða titill þeirra sem áður hétu biskupar, en merking orðanna er hin sama, þ.e.,…

    Hlusta
    Kristján III. kóngur 1536-1559Júlíus III. páfi 1550-1555 og ástmögur hans, Innocenzo Del Monte, kardináli 17 ára gamall.Kerúb færir Kristjáni IV. umboð+3
  15. 1550Lag: Eg eri jólamaðurin, Hans J. Höjgaard

    Hann oss um það telur trú

    og trúir því sjálfur kannski
    að lykla himins og heljar nú
    hafi' h'ann, kóngurinn danski.

    Í miðaldakaþólsku styttu góðverk, kárínur og bænir vist í hreinsunareldinum, en ríkir fengu og stytt dvölina þar með því að gefa kirkju og fátækum og gerðu það oft rausnarlega á banasæng sem túlkun á Markús 10, 21b. Á…

  16. 1550Lag: Bjórkjallarinn. Texti Spaugstofunnar að hluta

    Með bjórglas einn við bar ég sit

    og bergi daginn langan
    nei, þetta er sko ekkert vit
    því Skálholtsprestinn skyldi taka fangan.
    Ég frétti er las, að fæddi Gunna tvö
    og frekar eitt í viðbót.
    og fyrr en varir þau eru orðin sjö
    svo ekki er hér vanþörf á siðbót.

    Fyrsti biskup í Skálholti eftir siðbót Lúthers var Gissur Einarsson (1512-1548). Íslenskar æviskrár I, 466: ,,Eysteinn Þórðarson kirkjuprestur í Skálholti og er orðinn það 1539. Í utanför Gissurar Einarssonar til vígslu…

  17. 1550Lag: Óvinnanleg borg

    Yfirlit 16. aldar A

    1 erindi til viðbótar

    Með Portúgalanum Ferdinand Magellan (1480-1521) sigldu 237 menn í mars 1519 í vestur á 5 skipum frá Sevilla og náðu þrjú skip fyrir suðurodda Ameríku til Filipseyja í mars 1521. Þar féll Magellan í bardaga, en eitt 85…

  18. 1550

    16.öld - yfirlit B framhald

    1 erindi til viðbótar

    Auk Guðrúnar Gottskálksdóttur, heitmeyjar Gissurar Einarssonar biskups, (þríburar) þá fiflaði dómkirkjupresturinn, séra Eysteinn Þórðarson, einnig móður hans, Gunnhildi Jónsdóttur, þá um sextugt, á meðan Gissur var…

  19. 1551Lag: 10 litlir negrastrákar

    Axel Juul og Otti Stígs

    til Íslands skipum stefna
    kóngsins vegna, en Kristjáns vígs
    kunna eigi hefna.
    2 erindi til viðbótar

    Við komu tveggja herskipa var réttur settur á Oddeyri 15. júní 1551 og þeir þrír Hólafeðgar dæmdir til dauða fyrir landráð, en herra Jón hafði kært Kristján III. fyrir Karli V. keisara og beðið um hernaðaraðstoð og þar…

    Hlusta
    AkureyriAkureyri 1900+3
  20. 1551Lag: 10 litlir negrastrákar

    Á því kunnu karlar lag

    kviku fé að lóga-
    14 drápu í Danska-slag
    dugðu fleira' en róa.
    1 erindi til viðbótar

    Norðlenskir útróðrarmenn drápu eftir áramótin Christian Schriver (Kristján skrifara), ungan son hans, og ~12 sveina hans á Kirkjubóli í Höfnum. Sjá 1551. Christian hafði staðið fyrir aftöku þeirra Hólafeðga í Skálholti.…

    Hlusta
    HafnirStóll frá Grund um 1550+3