Kóngur páfi orðinn er
Lag Eg eri jólamaðurin - (H.J. Höjgaard)
Kóngur páfi orðinn erenda prestar falirgóðu verkin Guð ei sérgilda ríkisdalir.
Hann oss um það telur trúog trúir því sjálfur kannskiað lykla himins og heljar núhafi' h'ann, kóngurinn danski.
Heimildir og samhengi
Kristján III. gerist páfi ríkiskirkju í Danaveldi 1536-7. Tók sér titilinn summus episcopus (æðsti biskup) en superintendent skyldi verða titill þeirra sem áður hétu biskupar, en merking orðanna er hin sama, þ.e., yfirskoðari. Kóngur varð þar með, ásamt Herradegi aðalsmanna, - síðar, 1661, Höjesteræt - löggjafi og æðsti dómari í kirkjumálum sem veraldlegum þótt í stappi stæði, sbr. t.d. Vælugerðisdóm 1645.
Vald páfa kom (kemur) af því að hann telst í vígslunni arftaki Péturs postula. (Mattheus 16. kapítuli, vers 18, 19).
Kristján 3. hirti ekki um þá umdeilanlegu vígsluröð og lét - prestvígðan þó - Johannes Bugenhagen, vígja lútherska superintendenta, en taldi sig eins og aðrir kóngar, hafa þegið vald sitt frá Guði. Á málverki fær danskur kóngur umboðsvald sitt frá englum Guðs.
Þeir sem hann fól að framkvæma vald sitt sóru honum trúnaðareið (1621) og höfðu þá meiri rét fyrir lögunum (1698, 1699).
Til skamms tíma var þyngri refsing við því að brjóta á opinberum starfsmanni, sem þjóðhöfðinginn hafði skipað.
Tilvísun: Páll Skúlason, Pælingar, 248.
Enn eru til royalistar og trúarbrögð sem byggja á stéttaskiptingu.
Á öndverðri 19. öld urðu allir karlmenn jafnir fyrir lögunum í V-Evrópu og konur á síðari hluta þeirrar aldar, (sjá 1850, 1861, 1689 og 1873 um hvernig þeim lögum var hlýtt).
Eiríkur Jónsson, Rætur Íslandsklukkunnar, bls. 85: ,,Á sögutíma Íslandsklukkunnar töldu æðstu valdhafar sig þiggja vald sitt af guði. Valdboð konunga voru því einskonar guðslög. Þeir ríktu af ,,guðs náð" og þeir sem gættu laga þeirra og réttar tóku meiri háttar ákvarðanir ,,að heilags anda náð tilkallaðri". Þannig samþættist geistlegt og veraldlegt vald, konungurinn varð einingartáknið".
Einar Laxness, Íslands saga III, 78 - superintendent: ,,...skyldi biskup vera venjulegur embættismaður, þ.e., hefði ekki postulegt vald eins og kaþólskir biskupar, en stjórnaði kirkjunni í umboði konungs, sem var æðsti yfirboðari lúthersku kirkjunnar".
Heimild til þess að setja sig, ,,furstann", yfir kirkjuréttinn sækir kóngur til þess er Lúther brenndi bannfæringarbréf páfa.
Einar Laxness, Íslands saga I, 47: ,,...heitið (goði) er dregið af orðinu goð, þ.e. guð, og byggist á fornri trú, að höfðingjar væru goðbornir og nytu sérstakrar verndar guðanna". Fyrstu lúthersku biskupana skipaði kóngur og engu réðu prestar um biskupsval Þórðar Þorlákssonar og Jóns Vigfússonar á 17. öld. Harboe valdi tvo biskupa á 18. öld og þá sátu kóngsins leikmenn í forsæti prestastefnu á Þingvöllum. Fé skammtaði kóngur kirkjunni úr hnefa.
Þarna, um 1550, endurtekur sagan sig frá 800:
Árni Heimir Ingólfsson, Saga tónlistarinnar, 22: ,,Keisarinn (Karl mikli, vígður í Róm 800 e.Kr.) var klókur og vissi að miðstýring valds yrði auðveldari ef unnt væri að samræma ákveðnar hefðir um gjörvallt ríkið. Þar gegndu helgisiðir lykilhlutverki. Með því að samræma helgihald undirstrikaði keisarinn að vald hans væri frá Guði". Þarna er fjallað um innleiðingu samræmds gregorsks kirkjusöngs í Rómv. kaþólsku kirkjunni ~750 árum eftir dauða postulanna Péturs og Páls.
Frá 800 til ~1550 eru liðin önnur 750 ár, en 1538 sendi Kristján III. sína kirkjuskipun til Íslands, sem tók gildi 1541 fyrir Skálholtsstifti og 1551í Hólastifti.
Tilvísun: Steinunn Kristjánsdóttir, Leitin að klaustrunum, bls. 456.
Frá 1. janúar 2020 er þjóðhöfðinginn ekki æðsti yfirmaður Íslensku þjóðkirkjunnar.
ABBA, The winner takes it all: MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Í miðaldakaþólsku styttu góðverk, kárínur, pílagrímagöngur, föstur og bænir vist í hreinsunareldinum, sbr. Jakobsbréfi 2. 24: ,,maðurinn réttlætist af verkum og ekki af trú einni saman".
Annar möguleiki var að millifæra eigur til annars heims með því að gefa þær kirkju og fátækum og gerðu menn það oft á banasæng sem túlkun á Markús 10, 21b. Ekki var hendi slegið á móti slíkum (sálu)gjöfum í lúthersku lengi vel. (Sjá Einar Laxness, Íslands saga II, 63, Kristfé).
Þá og enn er heitið á kirkjur og helga menn og þykir gagn að svo sem þegar sm. Jón Thoroddsen lætur strákinn Finn í ,,Manni og konu", bjarga séra Sigvalda úr sjálfheldu óðar, er hann hafði heitið kirkju sinni brík. Bríkin sú kom aldrei, þ.e., hugur fylgdi ekki máli, en samkvæmt Lúther var það hugurinn sem skipti máli en ekki góðverkið, þ,e., Guði skyldi ekki mútað.
Þó voru mútur ekki bannaðar fyrr en1635- sjá þar.
Vigfús Guðmundsson: Oddi, bls. 127: ,,...eignamenn gáfu jarðir, skóga, reka, búfénað, prestaskrúða. ...Dánargjafir tíðkuðust líka í kaþólskum sið. Og allt slíkt var gefið sér og öðrum til sáluhjálpar til kirkna og prestsetra eins og biskupsstóla, klaustra og krossa, Kristfjárbúa og ferjustaða".
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
Sektir sem veraldlegir dómarar ákváðu í lúthersku komust aldrei neitt í námunda við það þegar síðustu kaþólsku biskuparnir sátu um framferði veraldlegrar yfirstéttar hirtu allar eigur forríkra, t.d. fyrir að ganga óverðugir til altaris, sem Einar Þorleifsson yngri, Skarði, gerði á Brjánslæk 1481 og greiddi 240 stór hundruð hundraða 1487. Og allar eigur Teits ríka Þorleifssonar í Glaumbæ hirti Jón Arason, en Teit bannfærði hann fyrir að annast föðurlausan vangefinn bannfærðan mann sem bannfærður var fyrir að umgangast, föður sinn - bannfærðan. Þannig var endir kaþólsku á Íslandi að því sinni.
Guðbrandur Jónsson segir í Herra Jón Arason, 136: ,,kirkjan og stofnanir hennar voru mestu auðkýfingar hins menntaða heims" (á 15. öld), og urðu þá ,,embætti hennar eftirsótt af mönnum er sólgnir voru í fé og völd, en létu sig annað litlu skipta".
Steinunn Kristjánsdóttir, Leitin að klaustrunum, 126: ,,...var refsing á kaþólskum tíma almennt tekin út með gjöfum til kirkjunnar og góðum gjöfum í þágu Guðs. Þessu til staðfestingar eru tíðar pílagrímsferðir rétt eins og reglulegar skriftir og hvers kyns aflátsgjafir til kirkjunnar".
Á bls. 170 varpar dr. Steinunn fram tilgátu varðandi þau verðmæti klaustranna sem ekki þóttu skila sér til kóngs, sjá næstu málsgrein.
Á síðustu öld kaþólsku urðu biskupar þannig fengsælir og sendu páfa fé sér til heilla. Kom það enda Kristjáni III. á óvart hve lítið fémætt reyndist á stólunum þegar lét greipar sópa, 1551, og sendi þá mann, til að leita betur. (Saga Íslands,VI, 90).
Kóngur sló þó eign sinni á fasteignir klaustra og kirkna, sem voru 1/6 af öllum jarðeignum á landinu skv. Einari Laxness, Íslands saga II, 69.
Nefnt hefur verið hærra hlutfall, 1/2 nyrðra, 1/3 syðra, sjá hér að neðan um fasteignir.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Björn Þorsteinsson: Ný Íslandssaga, 191: ,,Kirkjan átti (um siðaskipti) 1/3 allra fasteigna ...var þjóðveldið úr sögunni þegar þeim áfanga var náð ...voru biskupar (kaþólskir) boðendur þeirrar hugmyndafræði sem konungs- og kirkjuvald hvíldi á og bæði viljandi og óviljandi grófu þeir undan þjóðveldinu". Bls. 202: ,,Um siðaskipti var rúmlega helmingur allra fasteigna í Hólabiskupsdæmi í höndum kirkjunnar".
Tekjur af þeim ~1.650 kýrverð á ári skattfrjálst að mestu og aflað að hluta með því að lofa himnavist og styttri dvöl í hreinsunareldinum. Páfi tók við sínum hluta teknanna.
Að þetta gangi upp í þjóðfrelsishetjuímyndinni af herra Jóni Arasyni kannast sá kaþólski Guðbrandur Jónsson ekki við í ritinu: Herra Jón Arason frá árinu 1950.
Doktorsritgerð Láru Magnúsardóttur, bls. 453 segir Kristján III. með Ríparartikulum 1542 hnekkja dómsvaldi biskups yfir þeim málaflokki, sem hét áður stórskriftamál. Kóngur gerist páfi og færir allt dómsvald til veraldlegra dómara.
Auði vildu ríkir halda í ættum og keyptu í kaþólsku leyfisbréf til að giftast ættingjum en nú seldi kóngur slík leyfi.
Sýnist þó að kóngar reyni í nýjum sið að virða áherslu Lúthers á ,,réttlæti furstans", t.d. á 16. og 17. öld með því að sýna viðleitni til að hemja yfirgang íslenskrar forréttindastéttar (1593, 1619, 1532 (Ara í Ögri) 1635, 1650, 1662) og með því að stofna Höjesteræt 1661, sem þó varð Íslendingum þyrnir í augum 1920.
Einar Laxness: Íslands saga III - sakeyrir: ,,Upp úr siðaskiptum rann allur sakeyrir til konungs og umboðsmanna enda missti kirkjan dómsvald það sem hún hafði áður haft”.
Fyrr mátti bæta brot t.d. með góðverki, gjöfum, pílagrímagöngu bænalestri, og fleiru, en að þýskri fyrirmynd, segir Guðrún Ása Grímsdóttir , bls. 133 í Ráðstefnuriti ll, Söguþings 1997, tók gildi í Danaveldi reglan ,,auga fyrir auga og tönn fyrir tönn. ... Bótaskylda þokaði fyrir böðuls hendi á þingum".
Þannig fá í manntalinu 1703 sjö menn starfsheitið böðull, og eru jafn margir kennurum í landinu þá, að skólameisturum Stólanna meðtöldum.
Lagabreytingar kóngs tóku langan tima og enn lengri að kæmust í framkvæmd.
Ísl. fornbréfasafn XI, 344: ,,1.765 persónur sektaðar fyrir brot gegn Stóradómi á tíu árum: 1641-50”. Sakeyrir gekk til sýslu- höfuðsmanns og kóngs í jöfnum hlutföllum skv. rannsókn Þorgeirs Rúnars Kjartanssonar.
Um auðsöfnun og framferði síðustu kaþólsku biskupanna, sjá og Vestfirðingasögu Arnórs Sigurjónssonar, bls. 427 og bók Guðbrands Jónssonar, Herra Jón Arason, auk þess Leiðarhólmaskrá, sem Einar Laxness birtir á bls. 128 í III. bindi Íslands sögu, en hún er samþykkt íslenskra höfðingja gegn kirkjuvaldinu 1513 og er hún einnig á bls. 428 hjá Arnóri.
Þess ber þó að geta, að fornleifauppgröftur á Skriðuklaustri, árin 2000 til 2012, sýndi að a.m.k. þar var sjúkum og öldruðum sinnt á fyrri hluta 16. aldar. En eins og fram kemur í bók dr. Steinunnar Kristjánsdóttur - sem stjórnaði uppgreftinum - Leitin að klaustrunum, frá bs. 431, þá stóð hreinsunareldurinn bæði undir stofnun og rekstri Skriðuklausturs; sjá og þar á bls, 465 og áfram.
Með réttmætum hætti eignaðist Kaþólska kirkjan ófáar jarðir með því að taka þær sem greiðslu fyrir skólagöngu prestsefna og upphald þeirra á námstímanum. Námskostnaðinn þá telur Magnús Már Lárusson sambærilegan við það sem hann var 1956, þegar hann birti ritgerðina ,,Námskostnaður á miðöldum" bls. 159 í Nordælu.
Páfi árið 1550 var Júlíus III., (1487-1555), sem í mars 1551 útnefndi sem kardínála ástmann sinn til fjögurra ára - sem það ár varð 17 ára gamall.
Heimildir: Vefurgiovannidallorto.com (opnast í nýjum flipa)
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Árni Daníel Júlíusson á bls. 261 í Sögu LIX - l - 2021: ,,...siðaskiptin komu ekki fram á Íslandi eins og fjandsamleg yfirtaka erlends valds. ... Upphaf Danmerkur sem velferðarríkis er rakið til lestrarherferðar lútherstrúarmanna eftir siðaskiptin. ... Um 1800 voru allir orðnir læsir hér á landi eftir átak sem stóð mestan hhluta átjándu aldar og raunar mun lengur, allt frá siðaskiptum".